Marius Borg Høiby, stjúpsonur Hákonar krónprins Noregs, var í morgun dæmdur í fjögurra ára fangelsi í Héraðsdómi Óslóar.
Høiby var ákærður í 38 liðum, meðal annars fyrir fjórar nauðganir, ofbeldi í nánu sambandi, líflátshótanir og fjölda annarra brota. Hann hafði þegar játað nokkur brot, þar á meðal að hluta það ofbeldi sem honum var gefið að sök að hafa beitt Frogner-konuna svokölluðu. Frogner er hverfi í vesturhluta Osló sem konan er kennd við.
Þá hafði hann játað umferðarlagabrot, árásarhegðun og að hafa afhent öðrum manni 3,5 kíló af marijúana.
Dómurinn hefur ekki verið birtur, en Norska ríkisútvarpið greinir frá því að hann hafi verið sýknaður af tveimur af fjórum nauðgunarákærum.
Það hefur sannarlega mætt mikið á norsku konungsfjölskyldunni síðustu vikur.
Mette-Marit, eiginkona Hákons krónprins og móðir Mariusar Høiby, er með ólæknandi lungnasjúkdóm og er ástand hennar alvarlegt. Í síðustu viku höfnuðu dómstólar ósk Høiby um að fá að losna úr gæsluvarðhaldi til að heimsækja móður sína.