Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, kynnti í morgun losun Íslands á gróðurhúsalofttegundum í fyrra og fór yfir stöðu loftslagsaðgerða og forgangsverkefni í málaflokknum. Heildarlosun í fyrra var 10,6 milljónir tonna af CO2 ígildum og dróst saman um 3,9 prósent milli ára.
Vonbrigði en samt góðar fréttir
Jóhann Páll sagði í upphafi fundar að illa hefði gengið að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda undanfarin ár.
„Þetta eru vonbrigði,“ sagði hann í hádegisfréttum RÚV. „Góðu fréttirnar eru þær að það er vissulega smávægilegur heildarsamdráttur en þetta er að gerast alltof hægt.“
Hann segir að ná verði meiri árangri hraðar. Þetta hafi legið fyrir þegar hann kom í ráðuneytið og síðan hefðu verið mótuð forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar sem unnið hafi verið að.
„Árangurinn af þeim aðgerðum mun þá birtast í losunartölum næstu ára.“
Hraða orkuskiptum
Ef fram fer sem horfir er afar ólíklegt að Ísland geti staðið við loftslagsskuldbindingar sínar fyrir tímabilið 2026–30, og útlit fyrir að Ísland nái varla hálfa leið að markmiðinu um 41 prósents samdrátt frá því sem var 2005. Þess í stað verði hann um 21 prósent.
Jóhann Páll segir að ákveðið hafi verið að hraða orkuskiptum í vegaframkvæmdum, ráðist hafi verið í stærstu úthlutun sögunnar úr loftslags- og orkusjóði, vörugjöldum hafi verið létt af nýjum rafbílum og stutt við landbúnaðinn í skilvirkari áburðarlosun.
„Það er mjög margt í gangi en við þurfum að gera enn betur og leita allra skapandi lausna til að draga hraðar úr losun.“