Margrét Jónsdóttir Njarðvík verður næsti skólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti.
Þetta herma heimildir mbl.is. Embættið var auglýst þann 8. apríl og umsóknarfrestur var til og með 27. apríl. Ráðið er til fimm ára í senn.
Alls sóttu sjö um stöðuna hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu:
- Elvar Jónsson, leiðtogi farsældar barna
- Guðmundur Stefán Gunnarsson, kennari og íþróttafræðingur
- Harpa Jörundardóttir, framhaldsskólakennari og sérfræðingur
- Hrafnhildur Hafberg, framhaldsskólakennari, alþjóðafulltrúi og kynningarstjóri
- Margrét Jónsdóttir Njarðvík, fyrrverandi rektor
- Nanna Kristjana Traustadóttir, sérfræðingur
- Víðir Stefánsson, aðstoðarskólameistari
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti.
mbl.is/Ómar Óskarsson
