Sex almennir borgarar voru drepnir í árásum Rússa á Úkraínu í nótt. Frá þessu greina úkraínsk yfirvöld á Telegram.
Mannskæðar árásir voru gerðar á bæinn Balakliya í austurhluta landsins og á Sumy í norðurhlutanum. 19 særðust í Sumy.
Allir drónar Úkraínuhers skotnir niður
Rússlandsher skaut niður 605 dróna Úkraínuhers í nótt yfir Rússlandi og Krímskaga. Rússneska varnarmálaráðuneytið segir loftvarnarkerfi landsins hafa skotið alla dróna Úkraínumanna niður í árásum næturinnar.
Flutningsmiðstöð netverslunarrisans Wildberries í Tver-héraði varð fyrir lítilsháttar skemmdum þegar brak hafnaði á henni.
Í Jaróslavl-hérði kviknaði í húsum og bílar urðu fyrir skemmdum eftir að brak frá drónum féll til jarðar.
Síðasti mánuður sá mannskæðasti í Úkraínu í rúm fjögur ár
Rússar og Úkraínumenn hafa hert á langdrægum árásum sínum að undanförnu með auknu mannfalli almennra borgara. Samkvæmt tölum Sameinuðu þjóðanna var nýafstaðinn júlímánuður sá mannskæðasti í stríðinu í Úkraínu frá því í apríl 2022.
Sameinuðu þjóðirnar telja að 1.396 almennir borgarar hafi verið drepnir á fyrri helmingi ársins og nærri átta þúsund særst. Það eru mun fleiri en á sama tímabili í fyrra og árið þar áður.