Málningin í Sundlaug Vesturbæjarlaugar hefur haldið áfram að flagna í allan vetur þrátt fyrir fjölmargar lokanir vegna viðhalds. Viðhaldslokun verður í lauginni í næstu viku en ekki verður ráðist í allt það viðhald sem þarf þá.
Lauginni var fyrst lokað 26. maí 2025 vegna viðhaldsframkvæmda sem drógust á langinn og var hún ekki opnuð aftur fyrr en 19. júní.
Þá var henni aftur lokað 18. ágúst og opnuð viku síðar. Eftir það þurfti að loka henni í sólarhring 29. ágúst og var hún opin til 13. október. Þá var henni lokað á ný til 28. október.
Átti að vera fínt næstu árin
Anna Kristín Sigurðardóttir, forstöðumaður laugarinnar, lýsir ástandinu í barnalauginni sem rosalegu.
„Seinasta sumar hófst þetta, þeir ætluðu að taka laugakerfið aldeilis í gegn. Þetta ætti bara að vera fínt næstu sjö árin eða eitthvað og síðan einhverjum tveimur vikum eftir opnun byrjar að flagna og svo er lokað aftur og aftur og þetta er alveg fram í október endalaust opna og loka, opna og loka,“ segir Anna við mbl.is.
Laugin aðeins „blettuð“ í sumar
Hún segir að ekki verði ráðist í almennilegt viðhald á lauginni í sumar heldur verði laugin aðeins „blettuð“ í viðhaldslokuninni sem hefst á þriðjudaginn í næstu viku og mun standa til 30. júní.
„Af því að það tók svo langan tíma að gera einhverja skýrslu um það hvað hafi valdið flögnuninni að þá var bara ákveðið að þetta væri svo stuttur fyrirvari að það yrði bara blettað í sumar og farið í einhverjar betri aðgerðir á næsta ári.“
Tvö slys vegna flögnunarinnar
Að sögn Önnu liggja nú fyrir tvær slysaskýrslur sem rekja má til flögnunarinnar.
„Tveir gestir hafa meitt sig á tá, sem tengist ástandinu á laugarkarinu.“
Þykir henni einnig afar einkennilegt að sömu verktakar hafa verið fengnir í verkið eftir allt sem gengið hefur á og segist hún aldrei hafa séð neinn málarameistara á staðnum til að fylgist með vinnunni.
„Þeir ætla að bletta laugina í þessari lokun, þrátt fyrir allt þetta fíaskó.“

