Dularfullt mál óþekkts manns sem hné niður úti á götu í Amsterdam í Hollandi fyrir rúmum þremur árum hefur vakið athygli langt út fyrir landsteinana. Þrátt fyrir umfangsmikla leit hefur hollenskum yfirvöldum enn ekki tekist að komast að því hver maðurinn er.Maðurinn fannst 10. maí 2023 og var fluttur á sjúkrahús en talið var að hann hefði fengið heilablæðingu eða heilablóðfall. Afleiðingarnar voru alvarlegar og þjáist maðurinn meðal annars af málstoli sem hefur gert honum ókleift að segja læknum og lögreglu hvað hann heitir eða hvaðan hann kemur.
Maðurinn hné niður úti á götu fyrir þremur árum – Enn veit enginn hver hann er