Maður á sjötugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald fyrir Héraðsdómi Södertörn í Svíþjóð og liggur undir grun um þrjár manndrápstilraunir í Älvsjö í Suður-Stokkhólmi á laugardagsmorgun með því að hafa þar skotið tvo menn og konu og er annar mannanna alvarlega sár eftir atlöguna.
Sá grunaði var handtekinn þar skammt undan og beinast grunsemdirnar gegn honum að stórfelldu vopnalagabroti og þremur tilraunum til manndráps að sögn Gabriellu Widstrand héraðssaksóknara.
„Við teljum að þarna hafi verið um einangraða deilu að ræða,“ segir Carina Skagerlind upplýsingafulltrúi lögreglu við sænska ríkisútvarpið SVT en Widstrand saksóknari segir ekki ljóst hvert deiluefni fólksins hafi verið.
Gæsluvarðhaldsúrskurður mannsins nær til 16. júní.