Tugir milljóna manna gætu staðið frammi fyrir hungri verði flutningaskipum með áburð ekki hleypt á næstunni um Hormússund. Þetta segir Jorge Moreira da Silva, framkvæmdastjóri skrifstofu Sameinuðu þjóðanna sem hefur það hlutverk að koma í veg fyrir yfirvofandi neyðarástand.
„Við höfum nokkrar vikur til stefnu til að koma í veg fyrir gríðarlega mannúðarkreppu, sagði hann í viðtali við AFP í dag. Svo gæti farið að 45 milljónir jarðarbúa myndu líða hungur vegna ástandsins.
Síðan Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran hefur verið lokað fyrir nær alla skipaumferð um sundið.