Svikapóstar sem virðast vera frá embætti ríkislögreglustjóra hafa verið sendir út að undanförnu og lögreglan hvetur fólk til að hugsa sig tvisvar um ef það verður vart við þá. Í Facebook-færslu lögreglunnar á Norðurlandi eystra er fólki sem telur sig hafa tapað fjármunum vegna slíkra pósta bent á að hafa tafarlaust samband við sinn viðskiptabanka til að fá ráðgjöf.
Jafnframt er því fólki bent á að hafa samband við lögreglu sem bendir á að tilkynna má netbrot á Ísland.is.