Lögreglan leitar að tveimur mönnum

Mynd: Lögreglan
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir tveimur mönnum sem hún óskar eftir að ræða við í tengslum við mál sem nú er til rannsóknar hjá embættinu.
Í tilkynningu lögreglu eru mennirnir beðnir um að hafa samband í síma 444 1000. Einnig er leitað eftir upplýsingum frá almenningi um hverjir mennirnir séu eða hvar þá sé að finna.
Þótt myndir af mönnunum séu óskýrar telur lögreglan að einhverjir kunni að bera kennsl á þá.
Þeir sem geta veitt upplýsingar eru beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000 eða senda ábendingu á netfangið [email protected].