Sex voru handteknir og grunaðir um aðild að þremur umfangsmiklum kannabisræktunum sem lögregla upprætti nýlega. Hún hefur lagt hald á samtals tæplega 800 plöntur á þremur stöðum.
Nýlega var greint frá því að 200 plantna kannabisræktun hefði verið stöðvuð í Reykholti í Bláskógabyggð. Auk hennar réðst lögregla í húsleit í sumarbústað í Kjós í lok júní þar sem virðist hafa verið ræktun um nokkrun tíma. Þá uppgötvaðist ræktun einnig á Reykjanesinu.
Grétar Stefánsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir þetta við fréttastofu.
„Það var ráðist í húsleitir á nokkrum stöðum og lagt hald á kannabisplöntur á þremur, tæplega 800 í heildina.“ Lögregla hefur einnig lagt hald á tilbúin fíkniefni.
Til rannsóknar er hvort þetta tengist skipulagðri brotastarfsemi.
Vísir greindi frá því að lögreglan og sérsveitin hefðu ráðist í handtökur á Vesturlandsvegi undir Esjunni síðdegis 25. júní. Grétar segir að þar hafi tveir verið handteknir í tengslum við kannabisræktunina sem stöðvuð var í Kjós.
Þau sem voru handtekin eru öll af erlendum uppruna, bæði karlar og konur. Enginn er í gæsluvarðhaldi vegna málsins.