Formaður Félags pípulagningameistara segir óveðurský hrannast upp í greininni sökum samdráttar á byggingamarkaði, þá sér í lagi nýbygginga. Félagsmenn séu þegar farnir að finna fyrir því. Hann telur lóðabrask, verðbólgu og háa stýrivexti því að kenna að píparar missi vinnuna.
„Það er farið að bera á uppsögnum,“ segir Böðvar Ingi Guðbjartsson, formaður Félags pípulagningameistara. Hann segir að víðs vegar um land, en sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu, verði vart við mikinn samdrátt í greininni.
„Menn hafa verið vanir að sjá marga mánuði fram í tímann, jafnvel ár vel mannað í verkum og þess háttar. En nú eru menn að sjá fram á það að þeir vita ekki einu sinni hvernig sumarið verður. Og það er áhyggjuefni,“ segir hann.
Farið sé að bera á því að nemendur í pípulagningum eigi í erfiðleikum með að komast á samning, sem Böðvar segir að sé alveg ný staða. Hann segir stöðuna margþætta. Verðbólga og háir stýrivextir spili stórt hlutverk í kólnun á bygginga- og fasteignamarkaði.
„Það sem líka er partur af þessum vanda sem snýr að okkur er aðkoma sveitarfélaga. Nú eru sveitarfélög mörg farin að líta á lóðasölu sem tekjustofn fyrir sveitarfélög og eru farin að selja lóðir mjög dýrt,“ segir Böðvar.
Hann segir mikilvægt að stjórnvöld og sveitarfélög taki málið föstum tökum. Halda þurfi byggingamarkaðinum á góðri hreyfingu.
„Það er mjög vont ef þú stoppar þessa vél, vegna þess að ef byggingamarkaðurinn stoppar þá tekur það alltof langan tíma að starta honum aftur. Það er það sem við viljum ekki sjá að raungerist.“