Einn áhrifamesti listamaður samtímans, Bretinn David Hockney, er látinn. Hann lést í gær á heimili sínu 88 ára að aldri og skilur eftir sig maka sinn Jean-Pierre Gonçalves de Lima.
Hockney var einn af forsprökkum popplistahreyfingarinnar á sjöunda áratugnum.
Hann er hvað þekktastur fyrir verkin A Bigger Splash og Portrait of an Artist. Árið 2018 var það síðarnefnda selt fyrir 70 milljónir punda, sem eru nær tólf milljarðar íslenskra króna, á uppboði og varð þannig dýrasta verk sem hafði verið selt eftir listamann á lífi á þeim tíma.
List Hockney var byltingarkennd á tíma þegar samkynja sambönd voru refsiverð þar sem hann lýsti gjarna heimilislífi samkynja para í verkum sínum.
Ferill Hockneys spannar sex áratugi og á þeim tíma einskorðaði hann sig ekki við einn stíl eða miðil. Hann er þekktur fyrir málverk af sundlaugum í Los Angeles en gerði einnig abstrakt landslagsmyndir, klippimyndir með ljósmyndum þar sem hann lék sér með dýpt og á efri árum gerði hann tilraunir til að skapa list með þrívíddartækni.
Hockney fæddist þann 9. júlí árið 1937 og stundaði nám í myndlist við Bradford College og við Royal College of Art. Á sjöunda áratugnum flutti hann til Los Angeles og festi sig í sessi þar með fyrrnefndum LA-verkum sínum sem gjarna sýndu sundlaugar, gott veður og fáklædda menn.