Karlmaður á fertugsaldri var fyrir helgi úrskurðaður í tveggja ára rekstrarbann vegna starfsemi byggingafyrirtækisins PJ Verks. Maðurinn var eini stjórnarmaður fyrirtækisins, framkvæmdastjóri þess og prókúruhafi frá stofnun fram að gjaldþroti. Hann er einnig skráður eigandi félagsins í fyrirtækjaskrá.
Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur sagði að ekki væri annað ráðið af gögnum en að félagið hafi kerfisbundið verið tæmt af fjármunum með ráðstöfun þeirra í þágu eigandans. Þetta hafi haft í för með sér tilheyrandi tjón fyrir kröfuhafa og samfélagið.
Dómari taldi sannað að eigandi og stjórnandi fyrirtækisins hefði látið fyrirtækið greiða sjálfum sér sex milljónir króna og að auki látið það greiða ýmsan persónulegan kostnað hans. Þetta hefði hann gert með úttektum úr hraðbönkum og millifærslum á eigin reikninga.
Meðal þess sem fyrirtækið greiddi fyrir var hótelgisting á Spáni, demantseyrnalokkar, jólaskraut, áfengi, jakkar frá 66°N, farsími, veggofn, Sodastream tæki, föt úr Herragarðinum og ýmsar vörur fyrir heimilið úr IKEA.
Einnig var greitt fyrir ferðir til Parísar og Litáens sem maðurinn sagði hafa verið farnar í viðskiptaerindum. Hann gat þó ekki upplýst um hvaða viðskiptamenn hann hefði hitt í þeim ferðum.
Á sama tíma söfnuðust upp vanskil við Skattinn og Gildi lífeyrissjóð auk þess sem kröfuhafar fengu ekki greitt, segir í dóminum. Fyrirtækið greiddi þó skatta og gjöld frá 2021 fram í febrúar 2023. Dómari segir þó að ekkert liggi fyrir um réttmæti þeirra skattskila í fyrirliggjandi bókhaldsgögnum. Af dóminum að dæma virðast hvorki skattar né iðgjöld hafa verið greidd síðustu þrettán mánuðina fram að gjaldþroti.
Megnið af tekjum PJ Verks kom frá Nord Verki sem maðurinn átti að hálfu. Hann var einnig framkvæmdastjóri þess fyrirtækis.
Þetta er í annað skipti sem maðurinn er úrskurðaður í atvinnurekstrarbann vegna sama fyrirtækis. Landsréttur ógilti fyrri úrskurð þegar ný gögn komu fram og vísaði málinu aftur í hérað.