Þingmenn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis skiluðu í gær af sér tveimur umsögnum um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður við Evrópusambandið um aðild. Tillögurnar fara til utanríkismálanefndar Alþingis sem hefur málið á sinni könnu og leggur til hvað verði gert í framhaldinu.
Tvær tillögur að nýrri spurningu
Stjórnarliðar skiluðu frá sér einni umsögn og stjórnarandstæðingar annarri. Í báðum er lagt til að spurningunni sem lögð verður fyrir landsmenn, ef af þjóðaratkvæðagreiðslu verður, verði breytt. Eins vilja þingmennirnir að svarmöguleikarnir verði einfaldaðir.
Meirihlutinn leggur til að landsmenn verði spurðir hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið í stað spurningar ráðherra um hvort halda eigi áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Minnihlutinn leggur til að spurt verði hvort Ísland eigi að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið.
Vilja einfalda svarmöguleika
Utanríkisráðherra lagði til að svarmöguleikarnir væru já og nei og þeim yrði fylgt eftir með staðhæfingu um að halda áfram eða halda ekki áfram viðræðum. Bæði meirihluti og minnihluti nefndarinnar leggja til að svarmöguleikarnir verði aðeins já og nei.
Þessu til viðbótar leggur minnihlutinn til að dagsetningu þjóðaratkvæðagreiðslu verði frestað svo landskjörstjórn gefist tími til að útbúa aðgengilegt, greinargott og hlutlaust kynningarefni þar sem jafnvægis sé gætt í umfjöllun.
Meirihlutinn lagði einnig áherslu á að tryggja yrði aðgang almennings að greinargóðu, aðgengilegu og hlutlausu kynningarefni þar sem jafnvægis væri gætt í umfjöllun. Hann segist í umsögn sinni hafa fengið þau svör frá landskjörstjórn að dagsetning þjóðaratkvæðagreiðslu í lok ágúst gæti falið í sér ýmsar áskoranir en að hún gæti engu að síður uppfyllt skyldur sínar og staðið fyrir víðtækri kynningu.
Utanríkismálanefnd leggur til næstu skref
Sem fyrr segir er það utanríkismálanefnd Alþingis sem hefur tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu á sínu borði. Það kemur því í hennar hlut að leggja til hvernig lagt verður upp með málið í seinni umræðu, hvort og þá hvernig spurningu og valmöguleikum verður breytt.