Gerðar verða breytingar á fimm leiðum landsbyggðarvagna af 25 leiðum sem starfræktar eru í leiðakerfi landsbyggðastrætó á vegum Vegagerðarinnar um land allt.
Breytingar á fjórum leiðum taka gildi í haust en ein snýr að sumaráætlun, að því er fram kemur í tilkynningu Vegagerðarinnar. Engar breytingar eru gerðar á tuttugu leiðum.
Breytingarnar eru gerðar til að halda kostnaði vegna reksturs landsbyggðavagna innan áætlana á fjárlögum.
Leiðin sem leggst af ekki sú fáfarnasta
Leið 73, sem fer um uppsveitir Suðurlands, leggst af en fram kemur í tilkynningu Vegagerðarinnar að nýting á henni hafi verið mjög lítil. Farþegafjöldi leiðar númer 73 nam alls 773 farþegum árið 2025 að því er fram kemur í tölfræði Vegagerðarinnar.
Samkvæmt sömu tölfræði var nýtingin á leið 73 þó meiri en á leiðum 62, 72, 81, 84 og 94 á ársgrundvelli miðað við árin 2021-2025.
Ekki næg nýting til að halda uppi aukinni tíðni
Fækka á ferðum með leið 50 til Akraness úr tólf niður í ellefu á virkum dögum, en tölfræði um þá leið liggur ekki fyrir á vef Vegagerðarinnar.
Með leið 51, sem er langfjölfarnasta leið landsbyggðarstrætó, ferðuðust farþegar alls 57.554 sinnum árið 2025, en ferðum með henni á að fækka úr sextán niður í fjórtán.
Eftir fjölgun ferða í upphafi árs var nýting leiðarinnar ekki næg til að halda uppi meiri tíðni, að því er fram kemur í tilkynningu Vegagerðarinnar.
Alls var leið 71 farin 2.591 sinni, en frá og með haustinu verða fjórar ferðir farnar á dag á virkum dögum í stað fimm ferða.
Árið 2025 var leið 61, sem ekki verður ekin í sumar, notuð í 159 skipti samtals.