Landsréttur hefur sýknað ungan mann sem sakfelldur var fyrir að nauðga þáverandi kærustu sinni af Héraðsdómi Reykjavíkur í október í fyrra.
Maðurinn var dæmdur fyrir að hafa, þegar hann var tvítugur og hún nítján ára, haft samræði við þáverandi kærustu sína á meðan hún var sofandi og þar af leiðandi nauðgað henni þar sem hún gat ekki spornað við verknaðinum sökum svefndrunga.
Í dómi Landsréttar segir að maðurinn hafi staðfastlega neitað sök. Hann hafi skýrt svo frá að hann hafi átt samræði við stúlkuna umrætt kvöld en að hún hafi verið vakandi og veitt samþykki.
Landsréttur taldi framburð mannsins hafa verið stöðugan og að hnökrar á honum væru ekki þess eðlis að draga úr trúverðugleika hans.
Í dómi héraðsdóms kom fram að ungu konuna hafi farið að gruna, daginn eftir að hún gisti hjá manninum, að hann hafi haft samfarir við hana um nóttina án þess að hún hafi orðið þess vör. Hún hafi spurt hann út í málið á samfélagsmiðlaforritinu Snapchat og hann játað. Þegar hún hafi spurt hvort honum þætti það í lagi hafi hann spurt hvort svo væri ekki þar sem þau hefðu rætt þetta áður.
Þá segir í dómi héraðsdóms að maðurinn hafi gengist við því í skilaboðum að konan hefði ekki veitt samþykki fyrir kynlífi í þetta sinn.
Snapchat-skilaboð ekki næg sönnun
Í dómi Landsréttar segir hins vegar að ekki sé talið að Snapchat-skilaboðin gætu falið í sér viðurkenningu mannsins á að hafa brotið á konunni. Framburður hennar var því ekki talinn duga til að fella á manninn sök.
Ákæruvaldið taldi þar af leiðandi ekki sannað að hafið væri yfir skynsamlegan vafa að maðurinn væri sekur og hann því sýknaður af kröfu ákæruvaldsins og einkaréttarkröfu ungu konunnar vísað frá dómi.