Breska leikkonan Joan Collins, er enn að þrátt fyrir að vera orðin 93 ára gömul og leikur nú í kvikmyndinni My Duchess. Aðspurð um ráð um hvernig hún heldur sér unglegri og hvernig á að eldast með reisn:
„Ég elska lífið bara,“ sagði Collins við The Independent á Women of Power viðburði Variety. „Ég vakna á hverjum morgni og anda að mér ferska loftinu, reyni að sofa vel, drekka mikið vatn og hugsa vel um sjálfa mig.“
Hún segist þó eins og aðrir þurfa smá búst fyrir sjálfstraustið af og til. Ráðið til þess er að horfa á gamlar kvikmyndir.
„Ef þú ert mjög heppinn gætirðu fundið gamla Bette Davis-mynd öðru hvoru,“ sagði Collins. „En mér líkar vel við myndir frá áttunda og tíunda áratugnum, þær með Jack Nicholson og Söruh Jessicu Parker.“

Collins mætir enn í ræktina bæði til að líta sem best út og líða sem best.
„Ég æfi með þjálfaranum mínum nokkrum sinnum í viku,“ útskýrði hún. „Bara einfaldar Pilates -æfingar frekar en að nota eitt af þessum Pilates-tækjum.“
Collins fer ekki í göngutúra. „Mér leiðast þeir. Ég geng um íbúðina mína og fínpússa blómin, en það er eiginlega allt og sumt. Þetta hljómar fáránlega en það er satt.“
Collins lagði áherslu á að hún væri heppin að hafa „mjög góð gen“.
„Pabbi minn lifði til 87 ára aldurs og fyrir einhvern sem fæddist árið 1903 er það alveg ótrúlegt,“ sagði hún. „Mamma hugsaði ótrúlega vel um mig og systur mína. Þegar við vorum að alast upp gaf hún okkur alls konar fæðubótarefni þegar enginn var að taka fæðubótarefni.“
Leyndarmál Collins við að vera ung í anda gæti einnig tengst fimmta eiginmanni hennar, Percy Gibson, sem er 32 árum yngri en hún. Þau giftu sig árið 2002 og eftir að hafa kysst fjölda froska telur hún sig loksins hafa fundið prinsinn sinn.
„Í fyrsta lagi vorum við frábærir vinir áður en við giftum okkur,“ sagði Collins við Fox News Digital árið 2023. „Við unnum saman að leikriti. Við nutum samvista hvort við annað. Við héngum saman. Við skrifuðum ástarbréf. Þetta gerðist smám saman. Og við áttuðum okkur á því að við vorum mjög á sömu bylgjulengd.“

„Hann er mjög ljúfur, góður og jarðbundinn einstaklingur,“ sagði hún. „Margir af þeim sem ég hef verið með, og ég ætla ekki að tilgreina hverjir, hafa annað hvort verið taugaveiklaðir, örlítið óstöðugir eða lent í alls konar öðrum hlutum.“
Fyrir Collins er aldursmunurinn „bara tala.“ Hún bendir á að það sé „aldrei of seint“ að finna ástina á hvaða stigi lífsins sem er. „Þannig líður okkur báðum,“ útskýrði hún. „Og við vorum fyrst og fremst vinir, umfram allt annað.“
Hún segir þau hjónin deila sama drifkraftinum, sem hún sagði að hefði verið hluti af leyndarmálinu á bak við varanlegt samband þeirra.
„Ég fæddist með gríðarlegan áhuga á lífinu,“ sagði hún. „Mamma sagði alltaf að ég væri aldrei kyrr þegar ég var barn. Ég gerði fimm mismunandi hluti í einu. Ég var að leysa krossgátu, smíða dúkkuhús, lesa, mála og reyna að verða rannsóknarlögreglumaður, allt í einu!“
„Lífið er gjöf,“ sagði hún. „Þess vegna kalla þeir það gjöfina, það er gjöf. Og svo margir sóa henni. Það er svo sorglegt. Það er gjöf og hún endist ekki mjög lengi.“
Í endurminningum sínum, Behind the Shoulder Pads, skrifaði Collins að Gibson hefði ekki áhyggjur af aldursmuninum því „ég hef mikinn lífskraft og áhuga á lífinu og öllu því sem það hefur upp á að bjóða. Percy viðurkennir oft að ég geti hafi meir orku en hann!“