Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum - Vísir

Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum - Vísir

Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum - Vísir

Spider-Man: Brand New Day er fjórða kvikmyndin í núverandi seríu um Köngulóarmanninn. Destin Daniel Cretton, sem hefur áður gert Shang-Chi (2021), heldur um leikstjórnartaumana og handritið skrifa þeir Chris McKenna og Erik Sommers (rétt eins og í síðustu þremur myndum).

Leikhópurinn er stór og stjörnum prýddur, Tom Holland fer með hlutverk Köngulóarmannsins Peters Parker en honum til halds og trausts eru Zendaya, Jacob Batalon, Jon Bernthal, Sadie Sink, Florence Pugh, Marc Ruffalo og Liza Colón-Zayas.

Spider-Man: Brand New Day var frumsýnd hérlendis fimmtudaginn 30. júlí og er sýnd í Sambíóunum, Smárabíói og Laugarásbíói.

Vinalegi Köngulóarmaðurinn sem allir elska

Köngulóarmaðurinn birtist fyrst í teiknimyndasögum Marvel Comics árið 1962 og varð fljótt að vinsælu fyrirbæri meðal barna og ungmenna. Fjöldi sjónvarpsþátta var gerður um persónuna en eftir velgengni kvikmyndarinnar Ofurmennið (frá keppinautinum DC Comics) árið 1978 horfði Marvel hýru auga til bíóhúsanna.

Fyrsta teiknimyndasagan um Köngulóarmanninn.

Við tóku tveggja áratuga tilraunir Marvel við að gera kvikmynd þar sem ýmsir leikstjórar voru orðaðir við verkefnið, þar á meðal James Cameron, Tobe Hopper og Albert Pyun. Stemmingin fyrir ofurhetjumyndum var þó ekki mikil í lok tíunda áratugarins og stórar myndir á borð við Steel (1997) og Batman & Robin (1998) floppuðu allharkalega. Þegar Marvel varð gjaldþrota árið 1996 seldi útgáfan réttinn að hetjunni til Sony og þá fóru hjólin loksins að snúast.

Sam Raimi, þá þekktastur fyrir gamanhrollvekjuseríuna Evil Dead, var valinn til að leikstýra myndinni og Köngulóarmaðurinn kom út árið 2002. Raimi reyndist fullkominn til að aðlaga hetjuna að stóra skjánum með sínum ýkta, hraða og teiknimyndalega stíl og næmni fyrir dramatík og sterkum persónum.

Kvikmyndin sló í gegn hjá áhorfendum og gagnrýnendum og markaði ákveðin vatnaskil í Hollywood. Þótt ýmsar kvikmyndir um ofurhetjur hefðu komið út áratugina á undan þá kveikti myndin (ásamt Leðurblökumannsþríleik Christophers Nolan) neista að ofurhetjumyndaæði sem stendur enn yfir. Raimi gerði tvær framhaldsmyndir um hetjuna sem voru báðar vel sóttar en þriðja myndin, sem einkenndist af mikilli íhlutun Sony, fékk hins vegar misjafna dóma.

Þríleikur Sam Raimi um Köngulóarmanninn er löngu orðinn að klassík.

Eftir að hafa byrjað á framleiðslu fjórðu myndarinnar sagði Raimi sig frá verkefninu vegna ósættis við kvikmyndaverið. Sony leitaði þá á náðir Marc Webb sem leikstýrði The Amazing Spider-Man (2012) og The Amazing Spider-Man 2 (2014) með Andrew Garfield í hlutverki hetjunnar. Sú fyrri gerði gott mót en framhaldið hlaut vægast sagt slakar viðtökur.

Á sama tíma hafði Marvel náð vopnum sínum með hjálp Disney og búið til sinn eigin kvikmyndaheim með vinsælum myndum um Járnmanninn, Kaptein Ameríku, þrumuguðinn Þór og Hefnendurna. Eina sem Marvel vantaði var Köngulóarmaðurinn og eftir samningaviðræður árið 2015 tókst þeim að innlima hetjuna inn í kvikmyndaheim sinn. 

Þríleikur Toms Holland í hlutverki Köngulóarmannsins.

Ungi breski leikarinn Tom Holland var ráðinn og gerði samning um leik í sex kvikmyndum, það er þremur myndum um Köngulóarmanninn og þremur öðrum Marvel-myndum. Á endanum verða þetta sennilega hátt í tíu myndir.

Fyrstur tvær myndirnar með Holland, Spider-Man: Homecoming (2017) og Spider-Man: Far From Home (2019), fylgdu Peter Parker í gegnum menntaskóla, ástarsamband og afhjúpun á því að hann væri bak við grímu Köngulóarmannsins. Þriðja myndin, Spider-Man: No Way Home (2021), fjallaði svo um tilraunir Peters til að þurrka út vitneskju allra um tengsl sín við Köngulóarmanninn með ófyrirséðum afleiðingum.

Ef lesendur vilja ekki spilla fyrir sér framvindu myndarinnar eða ýmsum vendingum hennar er best að hoppa í niðurstöðurnar.

Kulnun, hormónaójafnvægi og dularfullur óvinur

Glænýr dagur Köngulóarmannsins hefst níu mánuðum eftir að Peter Parker nýtti töfra Doktors Strange til að þurrka út vitneskju allra um hver hann væri. Síðan þá hefur Parker trassað allt félagslíf og sjálfan sig með því að sökkva sér ofan í ofurhetjustörf.

Könguló í kröppum dansi.

Árin líða og Parker fylgist úr fjarska með fyrrverandi kærustunni Mary Jane (Zendaya) og vininum Ned (Batalon) sem hafa haldið áfram með líf sitt og útskrifast úr draumaháskólanum MIT í Boston. 

Ekki nóg með að glíma við einmanaleika og hálfgert þunglyndi heldur er álagið við ofurhetjustörfin farið að segja til sín - líkami Peters er farinn að taka undarlegum hormónabreytingum.

Þegar dularfullt illmenni fer að herja á öryggisstofnanir borgarinnar reynist Köngulóarmaðurinn sá eini sem getur staðið í vegi þess. Ýmsar fígúrur koma við sögu, stökkbreytti vísindamaðurinn Dr. Bruce Banner (Ruffalo), Svarta ekkjan (Pugh) og Refsarinn (Bernthal), áður en yfir lýkur.

Stjörnuparið skín skært

Þó margt megi segja um síðustu fjórar myndirnar um Köngulóarmanninn er ekki hægt að neita því að Tom Holland hefur gert karakterinn algjörlega að sínum. Holland fangar frábærlega vinalega og viðkunnalega hluta persónunnar en getur líka flexað leikaravöðvana í erfiðari senum. 

Eftir að hafa fylgst með Parker í menntaskóla í fyrstu tveimur myndunum og eiga við skrilljón illmenni í nostalgíurúnki þeirrar þriðju þá er gaman að sjá Köngulóarmanninn loksins í sínu rétta umhverfi, að sveifla sér um steinsteypufrumskóginn og festa óþokka í vef sínum.

Gættu þín, hér kemur hann!

Þá fagnar maður því að sjá Parker loksins glíma við innri togstreitu þegar fyrri myndirnar þrjár hafa snúist svo mikið um baráttu hans við að halda nafnleysi sínu. Í þetta skiptið eru stóru vandamál Peters annars vegar andleg vanlíðan sem hefur byggst upp vegna vinamissis og tengslaleysis og hins vegar líkamlegt ójafnvægi sem leiðir til þess að hann missir stjórn á kröftum sínum og tilfinningum. 

Hvort tveggja er komið til vegna bælingar. Parker lét heiminn gleyma sér, glataði einu vinum sínum og hefur haldið einverunni til streitu síðan. Parker hefur helgað líf sitt Köngulóarmanninum og afleiðing þess er að köngulóin er að taka yfir manninn.

Hvað gerist þegar köngulóin tekur yfir manninn?

Parker þráir samt að endurnýja kynnin við gömlu vinina og getur ekki haldið aftur af sér þegar hann rekst á þau á förnum vegi. Kemistrían milli Holland, Batalon og Zendayu er góð og þær senur gefa hvað mesta innsýn inn í persónu Peters sem venjulegs ungs manns. 

Fyrir utan þær senur og heimsóknir til Mae frænku í kirkjugarðinum fá áhorfendur aldrei að sjá hversdagslegt líf Parker. Engar skýringar eru gefnar á því hvernig hann lifir, borgar leigu eða á efni á umfangsmiklum hátæknibúnaði. Þetta er auðvitað ofurhetjumynd en slíkar grunnupplýsingar eru mikilvægar í að selja manni kvikmyndaheiminn og aðalpersónuna sem venjulega manneskju.

Batalon er áfram í algjörri aukarullu sem Ned og þjónar helst því hlutverki að vera fyndinn og skrýtinn. Zendaya fær aftur á móti loksins bitastætt hlutverk sem MJ og hefur aldrei verið jafngóð. Tvær langsterkustu senur myndarinnar ganga út á samskipti parsins fyrrverandi og Zendaya stelur þeim algjörlega í bæði skiptin.

Zendaya er frábær í hlutverki MJ.

En Parker þarf auðvitað ekki aðeins að glíma við söknuð og sjálfan sig, þó það væri skemmtileg mynd – Köngulóarmaðurinn: Glænýr sálfræðingur – heldur einnig nýtt illmenni. Dularfull innbrot inn í Tjónastjórn, ríkisstofnun sem safnar saman hættulegum einstaklingum og vopnum, vekja athygli vegna þess að fólkið sem er að verki virðist undir stjórn einhvers annars.

Hasarsenurnar sem snúa að þessu tiltekna illmenni, sem Marvel hefur markvisst farið leynt með í allri markaðsherferð myndarinnar, eru vel útfærðar og með skemmtilegustu hasarsenunum sem maður hefur séð í Holland-myndunum. Á endanum kemst Parker að því hver er að baki innrásunum, rauðhærð ung stúlka að nafni Jean Grey (Sink) sem býr yfir hugrænum kröftum.

Marvel-ismi og hraðsoðin saga

Eftir frábæran fyrri hluta myndarinnar þar sem vel hefur tekist að halda jafnvægi milli vandræða Peters sem snúa að félagslífinu, líkama hans og New York-borg þá missir myndinn dálítið dampinn. Parker þarf að eiga við Jean Grey en þá kemur líka inn helsta meinsemd Marvel-kvikmyndaheimsins: stöðugar tengingar milli mynda og þátta Marvel.

Fyrr í myndinni leitar Parker aðstoðar hjá þremur persónum, Svörtu ekkjunni (úr nýju Hefnendunum), Dr. Bruce Banner/Hulk (úr upprunalegu Hefnendunum) og Refsaranum (úr samnefndum sjónvarpsþáttum), sem koma öll úr öðru efni í kvikmyndaheimi Marvel. Slíkar tengingar hafa verið hluti af heimssköpun Marvel síðustu tuttugu ár en eru líka frekar böggandi því markmiðið með þeim er fyrst og fremst að þóknast aðdáendum frekar en að segja góða sögu.

Köngulóarmaðurinn nýtur aðstoðar Refsarans í myndinni.

Hulk og Refsarinn fá þó nokkuð stærri hlutverk en Svarta ekkjan og koma töluvert við sögu í seinni hluta myndarinnar. Ruffalo er ágætlega reyndur eftir að hafa leikið Hulk reglulega síðustu fjórtán árin en Bernthal er mun skemmtilegri sem harðneskjulegur Refsarinn og kemistría hans með Holland er töluverð.

Viðbót mannanna tveggja er þó ekki úr lausu lofti gripin því báðir eru þeir speglar fyrir Parker. Refsarinn lifir einverulífi eftir að hafa glatað fjölskyldu sinni meðan Banner hefur bælt niður eðli sitt frekar en að ná náttúrulega stjórn á því. Grunnt er þó á þeim pælingum og markmiðið frekar að selja leikföng eða trekkja fólk að með markaðsefni en styrkja söguna.

Hinn vandinn við seinni hlutann er svo stóra illmennið, Jean Grey, sem hefur ríkt svo mikil dulúð yfir, bæði í öllu markaðsefni og fyrri hluta myndarinnar. Sú dulúð heldur manni verulega spenntum framan af þangað til hulunni er svipt af henni. 

Dularfullt illmennið leikur Köngulóarmanninn grátt.

Eftir það gleypir Grey of mikið súrefni myndarinnar á kostnað Köngulóarmannsins. Töluverður tími fer í að kynna baksögu hennar og tromma upp lokabardagann. Sink er vissulega öflug sem Jean Grey og sýnir bæði sýnar dekkstu hliðar og viðkvæmari bletti. Þegar kemur að lokauppgjörinu milli Parker og Grey er það leyst á ódýran hátt með sálfræðilegum brellum og dassi af væmni. Fyrir rest er síðan togað á hjartastrengi áhorfenda með algjöru tilfinningaklámi.

Meginþræðirnir þrír eru sterkir: Togstreitan innra með Peter er kraftmikil, líkamleg vandamál hans óhugguleg og illmennið spennandi. Úrvinnslan tekst þó misvel til. Endurfundir vinanna lukkast best þótt maður hefði þegið meiri uppbyggingu, glíma Parker við köngulóareðlið er of auðunnin og svo tekur væmnin yfir þegar kemur að illmenninu. Vafalaust flækir málin að Jean Grey er hugsuð sem framtíðarhetja hjá Marvel sem ætla á næstunni að innlima X-mennina inn í kvikmyndaheim sinn. Enn á ný flækist Marvel fyrir eigin myndum.

Niðurstaða

Glænýr dagur Köngulóarmannsins er skemmtileg ofurhetjumynd og sennilega sú besta af þeim fjórum með Holland í hlutverki Köngulóarmannsins. Leikstjórn Cretton gefur hasarsenum skemmtilegan blæ, sagan er fullorðinslegri en í fyrri myndum og leikhópurinn stendur sig prýðilega.

Holland hefur gert Köngulóarmanninn að sínum og er ein stærsta stjarna Hollywood í dag. Zendaya gefur ekkert eftir í hlutverki MJ og fær loksins eitthvað að gera. Aukapersónurnar eru flestar ágætar, Bernthal er skemmtilega ýktur sem Refsarinn, Sink öflug sem þjáður óþokki og svo má maður til með að nefna Bear-leikkonuna Lizu Colón-Zayas sem er góð sem rannsóknarlögreglumaðurinn Jean DeWolff. 

Þráhyggja Marvel fyrir því að tengja saman ólíkar myndir og þætti úr kvikmyndaheimi sínum er áfram jafn bagaleg og versta birtingarmynd þess er græna tröllið Hulk. Helsti löstur myndarinnar er þó hvað illa tekst að hnýta saman þræði myndarinnar og það er ýmist gert fljótfærnislega eða með ódýrri væmni.

#klístruðum #kulnaður #köngulóarmaður #púðurskotum #skýtur


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262917012d/kulnadur-konguloarmadur-skytur-klistrudum-pudurskotum

📰 Aðrar fréttir

Hver á­kvað að Guð­mundur Ingi ætti að hætta? - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Hver á­kvað að Guð­mundur Ingi ætti að hætta? - Vísir
„Svarið er nei,“ sagði Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra á Alþingi í gær, spurð hvort forystumenn ríkisstjórnarinnar hefðu ákveðið að Guðmundur...
Orðið á götunni: Stjórnarandstaðan spilar með Guðmund Inga - Guðrún finnur samhljóm með honum vegna slakrar enskukunnáttu
📅 25.09.2026 👁️ 0
Orðið á götunni: Stjórnarandstaðan spilar með Guðmund Inga - Guðrún finnur samhljóm með honum vegna slakrar enskukunnáttu
Upphlaup Guðrúnar Hafsteinsdóttur á Alþingi í gær er enn eitt vindhöggið af hennar hálfu. Þó fyrrum þingmaður flokks fólksins sé svekktur yfir því að ...
Fimm karlmenn sakaðir um ógeðfelld brot – Nauðguðu manni með járnröri og sendu myndband á vini sína
📅 25.09.2026 👁️ 0
Fimm karlmenn sakaðir um ógeðfelld brot – Nauðguðu manni með járnröri og sendu myndband á vini sína
Fimm karlmenn eru ákærðir fyrir nauðgun, sérstaklega hættulega líkamsárás, frelsissviptingu og hótanir vegna atvika sem áttu sér stað í ágúst árið 202...
Snorri hjólar í umfjöllun RÚV: „Það er ekki hægt að skálda þetta“
📅 25.09.2026 👁️ 0
Snorri hjólar í umfjöllun RÚV: „Það er ekki hægt að skálda þetta“
Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, segir umfjöllun RÚV um trans teymi barna og unglinga á Landspítala hafa augljósan pólitískan tilgang og það sé ...
Þykja breytingar á samningum ekki nóg til að skapa sættir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Þykja breytingar á samningum ekki nóg til að skapa sættir
Valgerði Rúnarsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra lækninga hjá SÁÁ, finnst áform Sjúkratrygginga og SÁÁ um að tryggja armslengd milli félagasamtakan...
Vegurinn í Árneshrepp lokaður vegna skriðu
📅 25.09.2026 👁️ 0
Vegurinn í Árneshrepp lokaður vegna skriðu
Vegurinn í Árneshrepp er lokaður vegna stórrar skriðu sem féll í Kaldbaksvík. Í tilkynningu frá sveitarfélaginu á Facebook segir að vegurinn sé lokaðu...
Why is the Pope in France?
📅 25.09.2026 👁️ 0
Why is the Pope in France?
The BBC's Hugh Schofield looks at why the visit is met with enthusiasm the Church attributes to growing spirituality among the French.
„Ef ég væri Pamela í Dallas“
📅 25.09.2026 👁️ 0
„Ef ég væri Pamela í Dallas“
„Ef ég væri Pamela í Dallas“ Sig­ríð­ur Jóns­dótt­ir skrif­ar um Svika­sög­ur eft­ir Maríu Reyn­dal, sem sýnt er í Borg­ar­leik­hús­inu. Það er ætíð f...
Aflátsbréf frá Brussel
📅 25.09.2026 👁️ 0
Aflátsbréf frá Brussel
Aflátsbréf frá Brussel Fréttin25. september 2026Evrópusambandið, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: Á miðöldum gátu syndar...
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35?
📅 25.09.2026 👁️ 0
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35?
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35? Fréttin25. september 2026InnlendarLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar. Ríkisútvarpið er engin venj...
Afstaða Íslands skýr
📅 25.09.2026 👁️ 0
Afstaða Íslands skýr
Utanríkisráðherra segir afstöðu Íslands til hörmunganna á Gaza, mannúðaraðstoðar og tveggja ríkja lausnarinnar skýra. Stuðningur við Palestínu sé miki...
Mannúðarkeðja mynduð til stuðnings við fólk á flótta
📅 25.09.2026 👁️ 0
Mannúðarkeðja mynduð til stuðnings við fólk á flótta
Boðað var til samstöðufundar fyrir fólk á flótta á Austurvelli í dag. Páll Óskar Hjálmtýsson flutti tvö lög ásamt Ljóta kórnum, Háskólakórnum og Kór H...
Taka upp Netflix þætti á Skóla­vörðu­stíg og Tina Fey ó­væntur gestur - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Taka upp Netflix þætti á Skóla­vörðu­stíg og Tina Fey ó­væntur gestur - Vísir
„Þetta var algjörlega ótrúlegt,“ segir Gunnar Theodór í samtali við Vísi sem hélt útgáfuhóf fyrir bók sína og Linn Janssen, Matargatið í húsakynnum Fo...
Ed Sheeran concerts cancelled becuase of bad weather
📅 25.09.2026 👁️ 0
Ed Sheeran concerts cancelled becuase of bad weather
The star's concerts in Massachusetts on Friday and Saturday are cancelled after severe weather warnings.
Tugir kannabisplantna fundust við húsleit í Bolungarvík
📅 25.09.2026 👁️ 1
Tugir kannabisplantna fundust við húsleit í Bolungarvík
Húsráðandi var handtekinn og færður til yfirheyrslu. Honum hefur verið sleppt og telst málið upplýst. Þetta er þriðja kannabisræktunin sem lögreglan á...
Jet2 plane evacuated after bomb threat at Tenerife South Airport
📅 25.09.2026 👁️ 1
Jet2 plane evacuated after bomb threat at Tenerife South Airport
A Jet2 passenger plane was evacuated at Tenerife South Airport today after a passenger reportedly made a bomb threat, triggering a precautionary secur...
Eldræða Bubba: „Þetta er svívirða“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Eldræða Bubba: „Þetta er svívirða“
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens segir að það sé hernaður í gangi gegn íslensku tungumáli. Í færslu sem lýsa má sem eldræðu segir Bubbi að það þurfi a...
Sonja Ýr Þorbergsdóttir: Það þarf ekki að slá á eftirspurnina hjá fátækasta fólkinu
📅 25.09.2026 👁️ 1
Sonja Ýr Þorbergsdóttir: Það þarf ekki að slá á eftirspurnina hjá fátækasta fólkinu
Vaxtatækið virðist vera eina vopnið við verðbólgu. Það slær á eftirspurn en það þarf ekki að slá á eftirspurn hjá hópnum sem nær ekki endum saman. Þes...
Sýnir Xi lýðræðisdjásn Banda­ríkjanna - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Sýnir Xi lýðræðisdjásn Banda­ríkjanna - Vísir
Trump sagðist einnig, samkvæmt AP fréttaveitunni, vilja sýna Xi gömul skjöl sem fjalla um samskipti Bandaríkjanna og Kína. Búist var við því að Xi myn...
Fundu kannabisræktun í Bolungarvík
📅 25.09.2026 👁️ 1
Fundu kannabisræktun í Bolungarvík
Miðvikudaginn 23. september framkvæmdi Lögreglan á Vestfjörðum húsleit í heimahúsi í Bolungarvík. Húsleitin var framkvæmd vegna grunsemda sem höfðu va...
Flugvirkjar og Icelandair hittast aftur á mánudag
📅 25.09.2026 👁️ 1
Flugvirkjar og Icelandair hittast aftur á mánudag
Ríkissáttasemjari segir fund Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair hafa gengið ágætlega. Samninganefndirnar funduðu í fyrsta sinn frá því að verkfall...
Man City 115 charges: What could the potential sanctions be?
📅 25.09.2026 👁️ 0
Man City 115 charges: What could the potential sanctions be?
Football finance expert Kieran Maguire says the potential sanctions for Manchester City will be 'significant' after the sources told BBC Sport that th...
Taka metsölubók af tilnefningarlista vegna ásakana um notkun gervigreindar
📅 25.09.2026 👁️ 1
Taka metsölubók af tilnefningarlista vegna ásakana um notkun gervigreindar
Taka metsölubók af tilnefningarlista vegna ásakana um notkun gervigreindar Kanadísk-haí­tíski rit­höf­und­ur­inn Thelyson Or­elien neit­ar að hafa not...
Gæslu­varð­hald fram­lengt yfir þremur - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Gæslu­varð­hald fram­lengt yfir þremur - Vísir
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu staðfesti þetta við Vísi í dag. Hún fór ekki fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir hinum þremur. „Rannsókn málsins mi...
Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur vegna fíkniefnabrota og peningaþvættis
📅 25.09.2026 👁️ 1
Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur vegna fíkniefnabrota og peningaþvættis
Þrír þeirra sem sátu í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á umfangsmiklum fíkniefnabrotum og peningaþvætti hafa verið látnir lausir.Þetta kemur ...
Á­kærðir fyrir að frelsisvipta mann og nauðga með röri - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Á­kærðir fyrir að frelsisvipta mann og nauðga með röri - Vísir
Þetta kemur fram í ákæru sem Vísir fékk afhenta að þingfestingu málsins lokinni, en þinghald í málinu er lokað og því hefur ákæran ekki fengist afhent...
Á­kærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Á­kærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri - Vísir
Þetta kemur fram í ákæru sem Vísir fékk afhenta að þingfestingu málsins lokinni, en þinghald í málinu er lokað og því hefur ákæran ekki fengist afhent...
Umsátur í Úkraínu – Hungur vofir yfir Oleshky
📅 25.09.2026 👁️ 1
Umsátur í Úkraínu – Hungur vofir yfir Oleshky
„Gúgglið Oleshky. Það er umsátur um bæinn og þar er mannúðarkrísa. Það berast fregnir af því að fólk svelti og fái ekki mannúðaraðstoð, fái ekki mat e...
Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni - Vísir
Konan lagði fram ákæru árið 2024 þar sem hún sakaði Jay-Z og Sean Combs, betur þekktur sem Diddy, um að hafa byrlað henni og nauðgað í veislu eftir að...
Fundu um­fangs­mikla kannabisrækt í Bolungar­vík - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Fundu um­fangs­mikla kannabisrækt í Bolungar­vík - Vísir
Einnig var hald lagt á búnað sem tilheyrði ræktuninni. Húsleitin mun hafa verið framkvæmd vegna gruns um að verið væri að rækta kannabisplöntur í húsi...
Sveinn komst við og fékk ryk í augað - „Þá kom einlægasta og fallegasta bros ever“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Sveinn komst við og fékk ryk í augað - „Þá kom einlægasta og fallegasta bros ever“
Lífið getur stundum verið fallegt í hversdeginum og þetta upplifði Sveinn Waage, leiðsögumaður með meiru, í vikunni þegar hann var djúpt snortinn af f...
39 missa vinnuna hjá LS Retail, þar af 17 á Íslandi
📅 25.09.2026 👁️ 1
39 missa vinnuna hjá LS Retail, þar af 17 á Íslandi
Hugbúnaðarfyrirtækið LS Retail hefur sagt upp 39 starfsmönnum vegna skipulagsbreytinga. Af starfsmönnunum sem sagt var upp starfa 17 á Íslandi.LS Reta...
Frey sagt upp hjá Eflingu
📅 25.09.2026 👁️ 1
Frey sagt upp hjá Eflingu
Frey Rögnvaldssyni var sagt upp sem upplýsingafulltrúa Eflingar í morgun, framkvæmdastjóri stéttarfélagsins segir við Vísi að uppsögnin hafi ekkert að...
Hvalveiðimaður lýsir 84 klukkustunda vinnuviku í 3 mánuði samfellt – Katrín spyr hvort þetta standist lög um hvíldartíma
📅 25.09.2026 👁️ 1
Hvalveiðimaður lýsir 84 klukkustunda vinnuviku í 3 mánuði samfellt – Katrín spyr hvort þetta standist lög um hvíldartíma
Maður sem starfaði á hvalveiðivertíð greinir frá því að unnið rúmlega 1000 klukkustundir á svokölluðum 8x8 vöktum, án fría. Katrín Oddsdóttir, lögmaðu...
Special agents blood and urine test results stolen in FBI hack
📅 25.09.2026 👁️ 1
Special agents blood and urine test results stolen in FBI hack
Experts say the hack could leave agents vulnerable to scams, blackmail and targeted attacks.
„Nauð­syn­legt er að kjara­samningar haldi“ - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
„Nauð­syn­legt er að kjara­samningar haldi“ - Vísir
Landsþingið lýsir í ályktuninni yfir vilja til lækkunar verðbólgu og vaxta með því að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5 prósenta á árinu 20...
Loftslagsskuldin er framtíðarskuld
📅 25.09.2026 👁️ 1
Loftslagsskuldin er framtíðarskuld
Loftslagsskuldin er framtíðarskuld Rósa Björk Brynj­ólfs­dótt­ir, formað­ur Vinstri grænna, skrif­ar um kostn­að að­gerða­leys­is í lofts­lags­mál­um ...
Hafði ekkert með á­tök sundþjálfaranna að gera - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Hafði ekkert með á­tök sundþjálfaranna að gera - Vísir
Greint var frá átökum á milli sundþjálfara á Vísi í síðustu viku þar sem sundþjálfari KR var handtekinn vopnaður hnífi grunaður um að hafa ráðist á ko...
„Bjóða upp á ein­hverja díla sem meika engan sens og undir­bjóða allt“ - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
„Bjóða upp á ein­hverja díla sem meika engan sens og undir­bjóða allt“ - Vísir
Það er kynlífsfræðingurinn og áhrifvaldurinn Sara Lind Annþórsdóttir sem opnar sig um mál umboðsskrifstofu á samfélagsmiðlinum TikTok. Samkvæmt heimil...
Söguleg dómsmál í Hæstarétti: „Mér fannst brotið á mínum rétti“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Söguleg dómsmál í Hæstarétti: „Mér fannst brotið á mínum rétti“
„Að mínu mati var þetta brot á EES-samningnum um frjálsan flutning launþega á milli EES-ríkja,“ segir Anna Bryndís Einarsdóttir taugalæknir.Hún ræðir ...
Met should probe handling of 'Putney Pusher' suspect death, says IOPC
📅 25.09.2026 👁️ 1
Met should probe handling of 'Putney Pusher' suspect death, says IOPC
Nicholas Brandram's family say he took his own life due to the "pressure" of a police investigation.
Prís frystir ekki verð: „Við erum ódýrust og ætlum að vera það áfram“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Prís frystir ekki verð: „Við erum ódýrust og ætlum að vera það áfram“
Matvöruverslunin Prís ætlar ekki að frysta verð heldur halda áfram að vera ódýrasta verslunin. Verkalýðshreyfingin hefur þrýst á verslanir að frysta v...
Jeffrey Donaldson victim describes 'profound impact' of child sex abuse
📅 25.09.2026 👁️ 1
Jeffrey Donaldson victim describes 'profound impact' of child sex abuse
The former DUP leader was found guilty of 18 counts of child sex abuse, including one of rape, in June.
NHS staff suspected of snooping on patient data to face immediate suspension
📅 25.09.2026 👁️ 1
NHS staff suspected of snooping on patient data to face immediate suspension
There have been too many cases of staff abusing patient trust, and enough is enough, the head of the NHS in England says.
Freyr látinn fara frá Eflingu - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Freyr látinn fara frá Eflingu - Vísir
Freyr var kallaður á fund á morgun og honum sagt upp fyrirvaralaust. Vísir náði tali af Frey í morgun en hann sagðist ekkert geta tjáð sig um málið, þ...
More than 413,000 cruise passengers visit Lanzarote as tourism grows
📅 25.09.2026 👁️ 1
More than 413,000 cruise passengers visit Lanzarote as tourism grows
Cruise tourism in Lanzarote continues to grow strongly, with more than 413,000 passengers arriving in Arrecife between January and August this year.Fi...
Starfsfólk Hagkaups varð ekki vart við lögregluaðgerð fyrir utan búðina
📅 25.09.2026 👁️ 1
Starfsfólk Hagkaups varð ekki vart við lögregluaðgerð fyrir utan búðina
Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til aðstoðar við Hagkaup á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi síðdegis í gær vegna manns með hníf og beitti hún pipar...
Vilja breytingu á „áralöngum samskiptavanda ríkis og sveitarfélaga“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Vilja breytingu á „áralöngum samskiptavanda ríkis og sveitarfélaga“
Jón Björn Hákonarson, sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar, lét af embætti sem formaður stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga í dag og við tók Almar G...
Two arrested after police raid cannabis farm in Tenerife
📅 25.09.2026 👁️ 2
Two arrested after police raid cannabis farm in Tenerife
Two men have been arrested after the Guardia Civil uncovered a substantial cannabis growing and production operation at a property in Tacoronte, in th...
Sara Lind gagnrýnir eiganda umboðsskrifstofu- „Mér persónulega finnst þetta vera költ“
📅 25.09.2026 👁️ 2
Sara Lind gagnrýnir eiganda umboðsskrifstofu- „Mér persónulega finnst þetta vera költ“
Kynlífsfræðingurinn og áhrifavaldurinn Sara Lind Annþórsdóttir segir umboðsskrifstofu og umboðsmann hérlendis grafa undan trúverðugleika áhrifavalda o...