Drjúgur tími var tekinn frá fyrir viðtalið og þar var farið um víðan völl. Meðal þess sem þáttastjórnendur spurðu hana út í voru sýnileiki hennar í umræðunni um þjóðaratkvæðagreiðsluna í ágúst, hvort varanlegar undanþágur væru raunhæfur möguleiki í aðildarviðræðum við ESB, verðbólgan, vextir og sleggjan umtalaða og sú staðreynd að kjarasamningar munu að óbreyttu losna í haust.
Að því loknu gafst hlustendum tækifæri til þess að spyrja hana út í hvaðeina sem þeim lá á hjarta.