Kristján Berg Ásgeirsson, oft kenndur við Fiskikónginn, vakti athygli fyrr í sumar þegar hann kom fram með harkalega gagnrýni á Reykjavíkurborg vegna framkvæmda við verslun sína á Sogavegi.Þá sagðist hann hafa fengið nóg af „valdníðslu og græðgi“ borgarstarfsmanna og fullyrti að verið væri að klekkja á sér. Nú kveður hins vegar við allt annan tón hjá Kristjáni. Hann hrósar borgaryfirvöldum og Hildi Björnsdóttur borgarstjóra eftir að lausn fannst á málinu og segir framkvæmdirnar hafa verið unnar í samráði við sig, með þeim afleiðingum að margar milljónir hafi sparast.
Kristján Berg birtir nýtt myndband eftir reiðilesturinn í sumar: „Ég segi bara takk Hildur og þið sem vinnið með henni“