Frederikssen, sem er forsætisráðherra, fór á fund konungs sem hófst klukkan tólf um hádegi þar sem kóngur lét henni stjórnarmyndunarumboðið í té á ný en þetta er í annað sinn á tveimur mánuðum sem.
„Við byrjum á morgun og næstu daga,“ sagði hún er hún greindi frá komandi meirihlutaviðræðum í samtali við fjölmiðla að loknum fundi með konungi.
Aldrei hefur stjórnarmyndun tekið svo langan tíma í Danmörku. Sextíu dagar eru frá þingkosningum í landinu og tveimur oddvitum, Frederiksen sjálfri og Troels Lund Poulsen, formanni Venstre, hefur mistekist að mynda meirihluta.
Lars Løkke Rasmussen, formaður Moderaterne, hefur verið í lykilstöðu í viðræðunum en miðjuflokkur hans hefur fram að þessu hvorki viljað mynda meirihluta til vinstri með Frederiksen né til hægri með Poulsen.
Allir formenn flokka sem fengu þingsæti í kosningunum fyrir tveimur mánuðum funduðu með Friðriki tíunda konungi í morgun og sögðu honum hvern þeir teldu að ætti að fá stjórnarmyndunarumboð.
Samkvæmt danska ríkisútvarpinu munu flokkar með meirihluta þingmanna hafa óskað eftir því að Frederiksen fengi aðra tilraun, þar á meðal Rasmussen frá Moderaterne.
Borgaraleg stjórn virðist nú úr sögunni eftir að Løkke Rasmussen lýsti því yfir í gær að hann styddi ekki hægristjórn undir forystu Lund Poulsens formanns Venstre.