Klaustrið í Garðabæ hefur staðið autt um nokkurt skeið og liggur undir skemmdum. Rúður hafa verið brotnar rúður og það eru óhreinindi og glerbrot um allt.
Miðað við umgengnina er ljóst að einhverjir hafa notað húsnæðið. Íbúi í nágrenninu, sem fréttastofa talaði við, segir alvanalegt að unglingar og ógæfufólk fari þangað inn, til dæmis til neyslu.
Þá er algengt að krakkar í hverfinu leiki sér í og við húsið.
Byrgt er fyrir allar dyr og glugga og hætta á stórslysi ef það kviknar þegar fólk innandyra. Enn er rafmagn á húsinu ótt það sé langt síðan það var í notkun.
Þá er opinn og óvarinn brunnur við húsið með tilheyrandi slysahættu enda margir metrar til botns.
2300 fermetra hús sem má muna sinn fífil fegri
Húsið, sem var byggt á áttunda áratugnum, var áður í eigu Sankti Jósefssystra. Í kaupsamningi sem Garðabær gerði við systurnar er kvöð sem gildir til ársins 2028 um að húsið verði nýtt í þágu aldraðra eða í aðra sambærilega starfsemi á sviði mannúðar, heilbrigðismála, barna eða unglinga.
Klaustrið er á tveimur hæðum, samtals 2300 fermetrar. Systurnar fluttu úr húsinu rétt fyrir aldamót. Eftir það var rekið þar dvalar- og hjúkrunarheimili um árabil en nú er óhætt að segja að það megi muna sinn fífil fegri.
Samið við verktaka um endurbætur árið 2024
Samkvæmt svörum frá Garðabæ hefur staðið til að gera húsið upp. Bærinn hafi mikinn áhuga á að klaustrið gangi í endurnýjun lífdaga, fái gott viðhald og verði glætt nýju lífi með öflugri starfsemi. Í lok árs 2024 var gengið til viðræðna við E. Sigurðsson ehf. um kaup eða leigu, endurbætur, viðhald og rekstur hússins í samræmi við þær kvaðir sem á því hvíla.
Á fundi bæjarráðs í apríl kom fram að E. Sigurðsson hefði enn ekki hrint verkefninu í framkvæmd og var ákveðið að skoða aðra möguleika á framtíðarnýtingu og endurbyggingu hússins.