Skyndibitakeðjan KFC hyggst ráðast í umfangsmiklar breytingar á matseðli, vörumerki og veitingastöðum sínum í því skyni að styrkja stöðu sína á bandarískum markaði. Greint er frá þessu í frétt CNBC.
Fyrirtækið mun meðal annars leggja aukna áherslu á beinlausan kjúkling, fjölga sósuvalkostum og þróa nýjar tegundir veitingastaða sem eiga að halda athygli viðskiptavina betur. Breytingarnar eru hluti af því sem KFC kallar „næsta kafla“ í sögu fyrirtækisins. DV hefur ekki upplýsingar um hvort og þá hvaða áhrif breytingarnar hafa á KFC hér á landi.
Bent er á það í frétt CNBC að samkeppni hafi aukist á undanförnum árum, meðal annars frá nýjum veitingakeðjum sem selja kjúkling og rótgrónum skyndibitarisum á borð við McDonald’s sem hafa aukið áherslu á kjúkling á matseðli sínum.
Scott Mezvinsky, forstjóri KFC á heimsvísu, kynnti breytingarnar á dögunum og verður megináherslan á beinlausan kjúkling. Þá verður úrvalið af sósum stækkað verulega, en í frétt CNBC kemur fram að fyrirtækið bjóði nú þegar upp á yfir tuttugu mismunandi sósur á alþjóðamörkuðum sínum. Loks á að auka úrval drykkja verulega og bjóða upp á svokallaða boba-drykki, freyðandi límonaði og ískaffi.
Fyrirtækið hyggst jafnframt breyta útliti veitingastaða sinna. Bent er á það í fréttinni að í sumar verði opnaður nýr veitingastaður í Texas sem byggir á opnu skipulagi og í september opnar tveggja hæða staður í Dúbaí sem er ætlað að bjóða gestum upp á yfirgripsmikla upplifun. Er markmiðið meðal annars að draga úr símanotkun viðskiptavina og auka þátttöku þeirra í upplifuninni á staðnum.
Endurnýjun vörumerkisins er einnig hluti af áætluninni. KFC hefur kynnt nýtt merki þar sem Colonel Sanders er í forgrunni ásamt uppfærðri hönnun sem á að minna á hina þekktu kjúklingafötu fyrirtækisins.
Þrátt fyrir að KFC sé ein stærsta veitingakeðja heims með yfir 34 þúsund staði glímir fyrirtækið við verulegar áskoranir á heimamarkaði sínum í Bandaríkjunum. Markaðshlutdeild keðjunnar meðal kjúklingaskyndibitastaða þar í landi dróst saman úr 16 prósentum árið 2021 í 9,4 prósent árið 2024.
Á sama tíma hafa keðjur á borð við Raising Cane’s og Popeyes styrkt stöðu sína og farið fram úr KFC á bandarískum markaði.
Þó að fyrirtækið hafi glímt við áskoranir í Bandaríkjunum hefur staðan utan þeirra verið mun betri. Kína og Evrópa eru nú stærstu markaðssvæði KFC miðað við sölu, en Bandaríkin eru komin í þriðja sæti.