Jamie Varley, menntaskólakennari í Blackpool á Englandi, var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn. Hann myrti hinn 13 mánaða Preston Davey, sem hann og sambýlismaður hans höfðu ættleitt árið 2023 eftir að hafa misþyrmt honum og misnotað mánuðum saman.
Varley hélt því fram eftir dauða drengsins í júlí 2023 að hann hefði drukknað í baði. Krufning leiddi hins vegar í ljós 40 mismunandi áverka á barninu en engin merki um drukknun. Varley var að auki sakfelldur fyrir kynferðislega misnotkun, þar á meðal 13 óviðeigandi ljósmyndir og myndskeið af barninu.
Sambýlismaður hans, John McGowan-Fazakerley, var dæmdur í 25 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot, barnaníð og að gera ekkert til að koma í veg fyrir dauða barnsins.
Sagði eftir viku að drengurinn væri dauðans matur
Preston fæddist í júní 2022. Líffræðileg móðir hans hafði verið dæmd fyrir morð þegar hún var á unglingsaldri árið 1999 og var ekki talin fær um að sinna barninu. Mennirnir tveir fengu ættleiðingu samþykkta í janúar 2023 þegar Preston litli var rúmlega hálfs árs og fengu hann svo heim 1. apríl. Strax fyrstu vikuna sendi Varley skilaboð á systur sína þar sem hann sagði að drengurinn væri dauðans matur því hann hefði sofið svo lítið nóttina áður.
Í lok maí var drengurinn fluttur á spítala vegna flogs og öndunarerfiðleika. Þá fundust óútskýrðir áverkar á drengnum en þeir voru þó ekki taldir grunsamlegir. Eftir tvær spítalaheimsóknir með barnið til viðbótar kom sérfræðingur í heimsókn og þá sagðist Varley öðru hverju fá dimmar hugsanir um að drekkja eða kæfa drenginn. Enginn grunur vaknaði um misþyrmingar á barninu í neinni þessara heimsókna. Þremur vikum seinna dó drengurinn.
Dómarinn sagði við dómsuppkvaðninguna að drengurinn hefði orðið fyrir stöðugu ofbeldi og vanrækslu af hálfu mannanna. Gremja Varleys gagnvart barninu hefði verið undirrótin af því. Starf hans sem kennari og aðlaðandi viðmót hafi gert sitt til að sannfæra fagfólk um að allt væri í lagi. Daginn sem Preston dó hefði hann greinilega þurft læknisaðstoð en í staðinn setti Varley hann í bað og skildi hann eftir.
Sjaldgæft er að lífstíðardómur án möguleika á reynslulausn sé kveðinn upp. Það er aðeins gert fyrir sérlega alvarlega glæpi. Um 70 manns afplána nú slíkan dóm. Vegna alvarleika málsins voru þeir sem sátu í kviðdómi undanþegnir slíkri setu það sem eftir er ævi þeirra.