Karl Bretakonungur og Kamilla drottning tóku á móti Harry Bretaprins, eiginkonu hans Meghan, hertogaynjunni af Sussex, og börnum þeirra í Highgrove House fyrr í dag.
Húsið er einkaheimili konungshjónanna í Gloucestershire. Buckingham-höll segir heimsóknina hafa verið persónulegan fjölskylduhitting.
Þetta er í fyrsta sinn sem konungurinn hittir barnabörn sín, hinn sjö ára gamla Archie og fjögurra ára gömlu Lillibet, í fjögur ár. Harry og Meghan hafa ekki heimsótt Bretland saman síðan árið 2022 þegar þau sóttu jarðarför Elísabetar drottningar.
Fengu ekki öryggisvernd
Harry hefur nokkrum sinnum heimsótt landið einsamall og hitti föður sinn í slíkri heimsókn í september á síðasta ári.
Hann mun sækja nokkra opinbera viðburði að þessu sinni, meðal annars Invictus-leikana, en Meghan og börnin verða ekki með í för.
Ekki liggur fyrir hvar fjölskyldan dvelur meðan á heimsókninni stendur. Óvíst var um tíma hvort fjölskyldan myndi láta verða af heimsókninni eftir allt saman eftir að breska ríkið hafnaði því að veita fjölskyldunni öryggisvernd á vegum ríkisins.
Bræðurnir hittast ekki
William Bretaprins var staddur í Windsor í dag þar sem hann tók þátt í pólóleik í góðgerðarskyni. Enginn fundur er fyrirhugaður milli bræðranna.
Stirt hefur verið á milli hjónanna og konungsfjölskyldunnar undanfarin ár eftir að þau sögðu skilið við opinberar skyldur sínar innan konungsfjölskyldunnar árið 2020 og fluttust til Kaliforníu í Bandaríkjunum.
Hjónin ræddu ákvörðunina um að stíga til hliðar í konungsfjölskyldunni í viðtali við Opruh Winfrey árið 2021. Viðtalið fór ekki vel í fjölskylduna en Meghan sakaði fjölskylduna meðal annars um að hafa haft áhyggjur af því hve dökkur á hörund sonurinn Archie yrði.