Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að fundur hennar og Harðar Arnarsonar forstjóra Landsvirkjunar í hádeginu í gær hafi ekki verið sérstaklega boðaður vegna afsagnar hans. Þá hafi breytingar á arðgreiðslum Landsvirkjunar til ríkisins ekki verið til umræðu.
„Við vorum bara að ræða um stöðu mála hjá fyrirtækinu. Þetta var reyndar fundur sem stóð til að halda í talsvert langan tíma en ég hef verið erlendis,“ segir Kristrún. „Þannig að ég vissi af þessu í dag að það kæmi til þess að hann myndi segja starfi sínu lausu.“
Hörður lætur af störfum í lok október en hann tók við stjórn fyrirtækisins árið 2009 og hefur því staðið í brúnni í 17 ár.
Kannast ekki við ágreining um arðgreiðslur
Aðspurð hvort hún viti til þess að ágreiningur hafi verið á milli Harðar og stjórnar Landsvirkjunar hvað varðar arðgreiðslur til ríkisins segist Kristrún ekki kannast við það. Ákvörðunin hafi alfarið verið Harðar og það sé hans að svara fyrir þær ástæður sem liggja að baki því skrefi sem hann hefur nú tekið.
Þá segir Kristrún að mögulegar hækkanir á arðgreiðslum til ríkisins hafi ekki komið til tals innan ríkisstjórnarinnar.
„Það er ákveðin aðrgreiðslustefna til staðar sem var samþykkt á sínum tíma og er gert ráð fyrir í fjármálaáætlun,“ segir Kristrún. „Ég veit ekki um frekari breytingar á henni og það er ekki eitthvað sem hefur verið sérstaklega rætt í þessu samhengi.“