Jóns Sigurðssonar minnst á Þingvöllum - MBL.IS
📅 2026-06-24 12:00:00
👁️ 0 lesið
Fyrsta skipulagða fimmtudagskvöld sumarsins í þjóðgarðinum á Þingvöllum verður leitt af Guðna Ágústssyni fyrrverandi alþingismanni og ráðherra. Guðni hefur staðið fyrir Þingvallagöngu í 15 ár og minnst margra merkilegra Íslendinga við þau tilefni.
Að þessu sinni verður Jóns Sigurðssonar forseta minnst. Með Guðna verða Lilja Dögg Alfreðsdóttir og Svandís Dóra Einarsdóttir auk Karlakórs Selfoss og Gunnlaugs Bjarnasonar óperusöngvara.
„Jón Sigurðsson var sómi Íslands, sverð þess og skjöldur og bar fram stærstu sigrana í sjálfstæðisbaráttunni, endurreisn Alþingis og stjórnarskrána 1874.
Á eftir kom svo heimastjórn, fyrsti ráðherrann og í kjölfarið fullveldið og lýðveldið. Það er við hæfi að minnast Jóns, sem var alla tíð sannfærður um að ekkert væri landinu mikilvægara en að Íslendingar stjórnuðu því sjálfir og kæmust undan konungsvaldinu.“ Guðni segir að árið 1874 hafi Bólu-Hjálmar ávarpað konunginn í nafni fjallkonunnar, en hann var langafi alnafna síns, Hjálmars Jónssonar, fyrrverandi alþingismanns og dómkirkjuprests.
„Nú hefur Hjálmar samið nýtt ljóð þar sem hann ávarpar Íslendinga og lýsir fortíð, nútíð og framtíð frá árinu 1874 í tilþrifamiklu ljóði sem Gunnlaugur Bjarnason syngur við lag Sigvalda Kaldalóns.“
Allir eru velkomnir í Þingvallagöngu, ekkert inntökugjald og frí bílastæði.
Sjálfstæðisbaráttan
Jón Sigurðsson fékk sæmdarheitið Sómi Íslands, sverð þess og skjöldur
Þingvallagangan hefst við þjónustumiðstöðina á Hakinu á fimmtudagskvöld kl. 20
Hjálmar Jónsson fetar í fótspor langafa síns og alnafna
Ókeypis aðgangur
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.