Jónas Heiðar Birgisson hefur verið ráðinn sem fjármálastjóri Sjómannadagsráðs en undir ráðið heyra Hrafnistuheimilin, DAS íbúðir, og Happdrætti Das. Jónas Heiðar tekur við starfinu af Kristjáni Björgvinssyni, sem hefur gengt lykilhlutverki hjá félaginu um árabil og starfað þar í átta ár. Eftir farsælan feril og mikilvægt framlag til uppbyggingar og þróunar Sjómannadagsráðs, Hrafnistu og tengdra félaga, hefur Kristján ákveðið að láta af störfum á næstu vikum.
Jónas nýr fjármálastjóri Sjómannadagsráðs og Hrafnistu