Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, fékk ekki greitt fyrir atriði í þættinum Vikunni á RÚV. Hann sakar Morgunblaðið og Sjálfstæðisflokkinn um pólitískan hráskinnaleig og óvandaða blaðamennsku.
„Í morgun birti mbl.is frétt um það að ég hefði fengið greitt fyrir að koma fram með Sigurjóni Kjartanssyni í þætti Gisli Marteins á RÚV. Ekki kom fram hvað það væri rosalega mikið. Þetta er því miður einungis pólitískur hráskinnaleikur og óvönduð blaðamennska. Það er ekkert sem kemur mér á óvart eða ég kippi mér upp við,“ segir Jón í færslu á samfélagsmiðlum í kvöld.
Vísar hann til fréttar á mbl.is um að Jón Gnarr hefði fengið greitt fyrir innslag í þættinum.
„Þetta er bara enn eitt ágætis dæmið um góða samvinnu Sjálfstæðisflokkurinn og Mbl. Fulltrúi þeirra í stjórn RÚV kemur með fyrirspurn um það hvort ég hafi fengið borgað. Stefán Eiríksson útvarpsstjóri svarar því einhvernveginn og þannig er þetta búið til,“ segir hann. En umræddur fulltrúi er Ingvar Smári Birgisson, lögmaður.
Jón segir engan hafa haft samband við hann eða Sigurjón Kjartansson, félaga hans í Tvíhöfða. Það hafi verið með vilja gert til að blaðmaður hefði ekki komist að sannleika málsins.

„Sannleikurinn er nefnilega sá að ég fékk ekkert greitt fyrir þessa framkomu,“ segir Jón. „Og því síður sá Sigurjón krónu. Ég hef oft komið fram í þessum sama þætti og minnist þess ekki að hafa nokkurn tíma fengið greitt fyrir það eða ætlast til þess að fá greitt. Þannig að ég sé ekki betur en að fyrirsögnin sé tóm lygi. Aðstandendur þáttarins höfðu samband við okkur og báðu okkur um þetta atriði. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í stjórninni fullyrðir líka á stjórnarfundi að ég sé yfirlýstur stuðningsmaður þess að Ísland gangi í Evrópusambandið. Ég er það ekki. Ég hef margoft lýst því yfir að ég sé aftur á móti opinn fyrir því að vega og meta kosti og galla slíkrar inngöngu.“
Og ennfremur:
„Ég hef lengst af ævinnar verið sjálfstætt starfandi. Það er kannski erfitt fyrir jarðtengda embættismenn, sem hafa aldrei þurft að berjast áfram á hinum frjálsa markaði frumlegrar hugsunar, að skilja fólk einsog mig. Ég álasa þeim ekki. Mér er algjörlega frjálst að stunda mína liststarfsemi og hafa af henni tekjur þótt ég sé þingmaður.
Á löngum ferli þá hef ég komið fram í ótal skemmti- og spjallþáttum án þess að taka neitt fyrir það. Ég hef með því, reynt að leggja mitt af mörkum til að styðja Íslenska dagskrárgerð og innlenda framleiðslu og Íslenska tungu. Mér hefur fundist það ákveðin skylda. Ég hef líka leikið í fjölda útskriftarverkefna úr Kvikmyndaskólanum og stuttmyndum án endurgjalds. Ég hef heldur ekki tölu á því hvað ég hef tekið þátt í mörgum styrktarverkefnum og söfnunum fyrir hin ýmsu góðgerðarmálefni í gegnum tíðina. Það hefur verið mér heiður og ánægja. Ég hef reynt að nota hæfileika mína og velgengni til að láta gott af mér leiða, styðja við, vera hluti af og gefa til samfélagsins; Íslands sem ég elska af öllu hjarta.“