Jón Björn Hákonarson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar. Frá þessu segir í tilkynningu á vef sveitarfélagsins.
Jón Björn hefur unnið að sveitarstjórnarmálum frá 1994. Hann var meðal annars í bæjarstjórn Fjarðabyggðar og forseti bæjarstjórnar á árunum 2010 til 2020 og bæjarstjóri frá 2020 til 2023.
Þá hefur Jón Björn sinnt margvíslegum trúnaðarstörfum og er í dag formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Í tilkynningunni segir að sveitarstjórn bindi vonir við að „reynsla Jóns Björns, víðtækt tengslanet og skýr sýn á þróun sveitarfélaga muni nýtast vel í áframhaldandi uppbyggingu Eyjafjarðarsveitar og í þjónustu við íbúa samfélagsins“.
25 sóttu um starfið, en 10 drógu umsögnina til baka.
- Auður Thorberg
- Bragi Þór Thoroddsen
- Einar Kristján Jónsson
- Elísabet Friðriksdóttir
- Gísli Ólafsson
- Hallur Guðmundsson
- Hermann Jóhannesson
- Jóhannes Valgeirsson
- Jón Björn Hákonarson
- Jón Hrói Finnsson
- Jónas Egilsson
- Katrín Dóra Þorsteinsdóttir
- Kári Gautason
- Ketill Sigurður Jóelsson
- Kristján Óli Níels Sigmundsson
- Lilja Birgisdóttir
- Magena Marinósdóttir
- Magnús Ingi Jónsson
- Maríanna H. Helgadóttir
- Nanna Lind Stefánsdóttir
- Ragna Berg Gunnarsdóttir
- Sigríður Bjarnadóttir
- Stefanía Guðrún Kristinsdóttir
- Sævar Freyr Sigurðsson
- Þorsteinn Þorsteinsson