Jarðskjálfti af stærð 7,7 varð norður af Flores-eyju í Indónesíu rétt fyrir klukkan tíu í kvöld. Upptök skjálftans voru á 10 kílómetra dýpi, 68 kílómetrum norðvestur af borginni Ende, samkvæmt jarðfræðistofnun Bandaríkjanna.
Tveir stórir eftirskjálftar hafa orðið, af stærð 5,6 og 5,9.
Veður- og jarðfræðistofa Indónesíu hefur varað við möguleikanum á flóðbylgju í kjölfar skjálftans.
Jarðskjálftar eru algengir við Indónesíu og nágrannaríki. Landið er staðsett í hinum svokallaða Kyrrahafseldhring, jarðskjálftabelti sem nær frá Nýja Sjálandi, í gegnum Suðaustur-Asíu og Japan og meðfram vesturströnd Norður- og Suður-Ameríku.
Fréttin hefur verið uppfærð.