Jarþrúður Ósk Jóhannesdóttir náttúruvársérfræðingur segir að rúmlega þrjátíu skjálftar hafi fylgt í kjölfarið. Hún segir þetta framhald á flekahreygingum sem hafa verið á svæðinu frá því í byrjun maí á þessu ári.
„Þetta er bara það sama og verið hefur og svipað því sem gerðist í byrjun júní þegar tveir skjálftar mældust, 3,3 og 3,9 stig. Og þetta er bara vegna flekahreyfinga og ekkert sem bendir til þess að eitthvað annað sé þarna í gangi. Enginn órói.“
Jarþrúður að svæðið sem um ræðir sé við Ok, við Þórisjökul og í grennd við Húsafell. Hún hefur ekki fengið upplýsingar um hvort skjálftarnir hafi fundist í sveitinni í nótt.
KOMMENT
Sagði Jarþrúður Ósk Jóhannesdóttir náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands.