Þéttleiki makríls í íslenskri lögsögu er ívið meiri en í fyrra en þó minni en árin þar á undan. Þetta kemur fram í bráðabirgðaniðurstöðum Hafrannsóknarstofnunar. Rannsóknarskipið Árni Friðriksson lauk þátttöku sinni í árlegum alþjóðlegum uppsjávarleiðangri að sumarlagi í Norðurhöfum 30. júlí. Megintilgangur hans var að rannsaka útbreiðslu og þéttleika makríls, síldar og kolmunna.
Makríll mældist á 21 af 34 yfirborðstogstöðvum, sem allar voru staðsettar austan við landið eða sunnan við Jan Mayen. Makrílseiði fengust á einni yfirborðstogstöð fyrir sunnan landið.
Þéttleiki kolmunna reyndist ágætur. Kolmunni fékkst á ellefu yfirborðstogum fyrir austan og sunnan landið, sem stofnunin segir vera óvenjulegt og bendi til mikillar útbreiðslu kolmunna við landið. Líkt og undanfarin ár var norsk-íslenska vorgotssíldin fyrir norðan og austan landið.
Bráðabirgðaniðurstöðurnar benda einnig til þess að hitastig í yfirborðslagi sjávar fyrir norðan land hafi verið hærra en sumarið 2025, sérstaklega sunnan við Jan Mayen. Það gæti skýrt hvers vegna mun meiri síld og makríll mældist þar en árið 2025. Fyrir austan, sunnan og vestan landið var yfirborðslagið aftur á móti lítillega kaldara en í leiðangrinum 2025.