Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra tekur undir með forsvarsmönnum bænda, sem hafa sagst uggandi um hag stéttarinnar eftir þrjú skemmdarverk og innbrot í eldisbú á tveimur og hálfum mánuði.
Það síðasta í minkabúið Dalsbú í Mosfellsdal í síðustu viku, þar sem mörg þúsund minkum var hleypt úr búrum sínum.
„Þarna er ekki eingöngu verið að valda fjárhagslegu tjóni og grípa inn í starfsemi, því bændur eru að öllu jöfnu með heimili sín, nálægt þessum vinnustöðum þeirra. Þannig að þetta er enn uggvænlegra þess vegna, þetta er alvarleg þróun,“ segir Hanna Katrín.
Engin áform um hömlur á loðdýrarækt
Síðustu ár hafa nokkur minkabú hætt rekstri, og Dalsbú er það eina sem eftir er. Loðdýrarækt hefur verið bönnuð í mörgum Evrópulöndum eða á hana settar hömlur, Hanna Katrín segir engin áform um slíkt hér á landi.
„Það er minnkandi eftirspurn eftir þessari afurð, þannig að einhverju leyti er það sjálfhætt. Ég er með fyrirhugað frumvarp um dýravelferð, þar verða almenn hert skilyrði varðandi dýravelferð og hvort það hafi umfram áhrif á loðdýrarækt frekar en annað, er allt of snemmt að segja.“
Nú hafa loðdýrabú verið að hætta rekstri síðustu ár, það er eitt eftir sem er Dalsbú í Mosfellsdal - er þá ekki meiri ástæða til að styðja við atvinnugreinina? „Þetta er atvinnugrein eins og hver önnur. Ef eftirspurn er ekki fyrir hendi, þá gera menn eitthvað annað.“
Að mati ráðherra hafa starfsfólk Mosfellsbæjar og minkabóndinn á Dalsbúi, Ásgeir Pétursson, unnið þrekvirki við að fanga minkana og koma böndum á ástandið.
Minkatilkynningum fækkar
Bærinn kom á sólarhringsvakt, þar sem fólk gat tilkynnt um minka á ferð. Hilmar Gunnarsson bæjarstjóri segir að sárafáar tilkynningar hafi borist síðustu daga.
Draga á úr viðbúnaði eftir helgi og MAST tekur þá við verkefninu. Hilmar segir að engar tilkynningar hafi borist um minka í þéttbýli. „Við erum eiginlega ánægðust með það,“ segir bæjarstjórinn.
Þetta hefur verið viðamikið og óvænt verkefni - eitthvað kostar þetta. Veistu hversu mikið?„Við erum ekki farin að taka það saman endanlega, en það hleypur á einhverjum milljónum,“ segir Hilmar.