„Þegar fólk gagnrýnir þig skaltu muna að jafnvel íslenskir fossar fá slæmar umsagnir.“ Þannig kynnir ferðaþjónustufyrirtækið Icelandia myndband þar sem fallegar myndir af íslenskri náttúru eru skreyttar heldur óvæginni gagnrýni.
Einum gesti þótti fossinn til dæmis alltof hávær. „Ég fékk höfuðverk,“ segir í umsögninni. Annar hafði minna út á fossinn sjálfan að setja, en gaf honum eina stjörnu vegna þess að nafnið var erfitt í framburði.
Gagnrýnin beinist líka að öðrum náttúruperlum. Í einni umsögn er kvartað yfir því að vatnið hafi verið óþægilega heitt og ekki bragðast sérlega vel, en vatnið sem um ræðir var hveravatn. Öðrum fannst útsýnið aðeins „dæmigert íslenskt landslag“.
Skilaboð Icelandia eru því ágæt huggun næst þegar einhver hefur eitthvað út á mann að setja. Ekki einu sinni íslensku fossunum tekst að gera öllum til hæfis.