Ísland í hlutverki annarra heima er hluti af bíótungumálinu

Ísland í hlutverki annarra heima er hluti af bíótungumálinu

Ísland í hlutverki annarra heima er hluti af bíótungumálinu

„Ef þú ert að fara á aðra plánetu eða í einhvern fantasíuheim þá er Ísland ein helsta leiðin til að koma því til skila í bíómáli. Ég hef sagt við suma sem ég er að vinna með: Ef þú ætlar að hafa sci-fi [vísindaskáldskap] þá kemstu varla upp með að hafa ekki smá Ísland í þessu.“

Þetta segir Jörundur Rafn Arnarson, betur þekktur sem Jörri. Hans sérsvið í kvikmyndagerð er tölvubrellur (VFX eða visual effects á ensku) og hefur Jörri komið að fjölda stórra verkefna jafnt hérlendis sem erlendis.

Íslenskt landslag er orðið afar áberandi í kvikmyndum og sjónvarpsþáttaröðum sem gerast á öðrum plánetum og í fantasíu- og ævintýraheimum.

Dæmin eru hreint út sagt fjöldamörg: Stjörnustríð (Star Wars), Stjörnuflakk (Star Trek), Prómeþeifur (Prometheus), Stjörnuryk (Stardust), Þór: Myrkraveröld (Thor: The Dark World), Krúnuleikarnir (Game of Thrones), Stjörnuhringir (Halo) og Vetrarbraut (Foundation) og er listinn ekki tæmandi.

Á þessu ári einu er Ísland í hlutverki annarra plánetna í stórmyndunum Ofurstelpunni (Supergirl), Meisturum alheimsins (Masters of the Universe) og í Dúnu: Þriðja kafla (Dune: Part Three). Þá er Reynisfjara í hlutverki undirheima grískrar goðafræði í Ódysseifskviðu Christophers Nolans (The Odyssey) sem er í sýningum um þessar mundir.

„Þetta er náttúrlega árangurinn af einhverjum tveimur áratugum af vinnu hérna og hefur hægt og rólega orðið hluti af bíótungumálinu,“ segir Jörri.

Áberandi í Stjörnustríði síðustu ár

Stjörnustríð er ein vinsælasta kvikmyndasería allra tíma og á mörkum vísindaskáldskapar og fantasíu.

Ísland hefur birst víða í Stjörnustríði síðustu ár, í kvikmyndunum Mátturinn vaknar (The Force Awakens) og Rogue One og þáttaröðinni um Mandalórinn (The Mandalorian). Þá var íslenskt landslag grunnurinn að útliti plánetunnar Sullust í tölvuleiknum Vígstöðvum (Star Wars: Battlefront) frá 2015.

Ísland birtist bráðum aftur í nýrri Stjörnustríðsþáttaröð, líklega Ahsoka sem er væntanleg síðar á árinu.

Jörri kom að tökum hér á Íslandi fyrir aðra seríu af Mandalórnum, nánar tiltekið fyrir fjórða þáttinn sem heitir Umsátrið (The Siege). Lítið tökuteymi skaut efni fyrir þáttinn hérlendis sem síðan var notað í eftirvinnslu þáttanna – svokallaðar plötutökur (plate-shoots) og þrívíddarskönnun (photo-grammetry).

Á myndinni er Jörri við Hafrahvammagljúfur. Gljúfrið var þrívíddarskannað fyrir Mandalórinn.

Sá þáttur gerist á plánetunni Nevarro sem er heimili Din Djarin, Mandalórsins, og birtist reglulega í þáttaröðinni. Plánetan er grá eða svört yfirlitum og þakin hrauni en einnig var myndað í Hawaii fyrir hana. Hér er vert að nefna að tökur fyrir Mandalórinn eru að mjög miklu leyti fyrir framan LED-skjái sem bakgrunnurinn birtist á í stað þess að nota grænskjái sem skipta verður út síðar meir. Tökur með leikurum fara að langmestu leyti fram inni í kvikmyndaveri.

Það læðist að fréttamanni sá grunur að Ísland hafi ratað með beinum eða óbeinum hætti inn í fleiri þætti af Mandalórnum en þennan eina, í það minnsta sem innblástur að útliti Nevarro. Plánetan birtist síðan einnig í Stjörnustríð: Mandalórinn og Grogu sem sýnd var í bíóhúsum fyrr á árinu.

Leikstjórar eiga eftir að halda áfram að vilja koma til landsins

Hér fyrir ofan er komið inn á plötutökur og þrívíddarskönnun. Fyrir slíkar kvikmyndatökur þarf minni hluta framleiðsluteymis og einblínt er á að fanga efni sem nýta má í bakgrunna eða landslagsskot. Plötutökur eru skipulagðar tökur þar sem ákveðin skot eru kvikmynduð á meðan þrívíddarskönnunin felur í sér að landslagið verður síðar meir endurskapað í tölvu.

Jörri bendir á að plötutökur og þrívíddarskannanir á Íslandi hafi færst í aukana á síðustu árum. Umfang slíkra kvikmyndatakna er talsvert minna en hefðbundinna.

Er hætta á að bankar erlendu kvikmyndaveranna geti fyllst af íslensku landslagi? Að þau muni hætta að koma hingað í tökur?

„Á pappír væri það svona, liggur við, auðveldlega hægt – ef menn myndu setja peningana og tímann í þetta. En það eru allar framleiðslur svo einstakar og í raun sitt eigið fyrirbæri,“ svarar Jörri.

„Ég þekki vel að í VFX er oft hugsað: Nú verður þetta bara endanlega lausnin til að leysa þessi vandamál alla tíð. En svo eru alltaf breytur. Það eru alltaf sérþarfir.“

Þá skipti miklu máli að framleiðendur og leikstjórar vilji hafa stjórn á því sem þeir eru að gera. Verði hlutir of staðlaðir reyni menn að gera eitthvað nýtt og vera með öðruvísi útlit.

„En auðvitað, eins og með photo-grammetryið, þar sem þú ert að þrívíddarskanna landslag, þá getur þú búið til tökur út úr því – alls konar tökur ef að þú vilt það. Það væri alveg fræðilegur möguleiki á að dekka eitthvað landslag eins og Þórsmörk og eiga það bara.“

Þá hafi kvikmyndagerðarmenn miklar skoðanir á því hvernig efnið er myndað, það er hvaða kvikmyndatökuvélar og linsur eru notaðar, sem ekki er hægt að breyta eftir á. Annað sem skiptir máli er upplausn eða fjöldi pixla í myndefninu.

„Svo lengi sem kvikmyndagerðarfólk er involverað þá held ég að þetta sé ekki að fara að gerast. En auðvitað geta kannski frekar í seríur farið í bankann frá síðasta season [seríu] og reddað sér með eitthvað í þetta season. Það var eitthvað smá um það í Game of Thrones til dæmis. En metnaðurinn vex líka alltaf. Þótt þau væru með eitt fjall frá síðasta season og notuðu það í næsta seasoni var alltaf hægt að finna eitthvað meira og biðja um meira. Það var eiginlega alltaf gert,“ segir Jörri.

#annarra #heima #hluti #hlutverki #ísland


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-08-island-i-hlutverki-annarra-heima-er-hluti-af-biotungumalinu-483212

📰 Aðrar fréttir

Hver á­kvað að Guð­mundur Ingi ætti að hætta? - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Hver á­kvað að Guð­mundur Ingi ætti að hætta? - Vísir
„Svarið er nei,“ sagði Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra á Alþingi í gær, spurð hvort forystumenn ríkisstjórnarinnar hefðu ákveðið að Guðmundur...
Orðið á götunni: Stjórnarandstaðan spilar með Guðmund Inga - Guðrún finnur samhljóm með honum vegna slakrar enskukunnáttu
📅 25.09.2026 👁️ 0
Orðið á götunni: Stjórnarandstaðan spilar með Guðmund Inga - Guðrún finnur samhljóm með honum vegna slakrar enskukunnáttu
Upphlaup Guðrúnar Hafsteinsdóttur á Alþingi í gær er enn eitt vindhöggið af hennar hálfu. Þó fyrrum þingmaður flokks fólksins sé svekktur yfir því að ...
Fimm karlmenn sakaðir um ógeðfelld brot – Nauðguðu manni með járnröri og sendu myndband á vini sína
📅 25.09.2026 👁️ 0
Fimm karlmenn sakaðir um ógeðfelld brot – Nauðguðu manni með járnröri og sendu myndband á vini sína
Fimm karlmenn eru ákærðir fyrir nauðgun, sérstaklega hættulega líkamsárás, frelsissviptingu og hótanir vegna atvika sem áttu sér stað í ágúst árið 202...
Snorri hjólar í umfjöllun RÚV: „Það er ekki hægt að skálda þetta“
📅 25.09.2026 👁️ 0
Snorri hjólar í umfjöllun RÚV: „Það er ekki hægt að skálda þetta“
Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, segir umfjöllun RÚV um trans teymi barna og unglinga á Landspítala hafa augljósan pólitískan tilgang og það sé ...
Þykja breytingar á samningum ekki nóg til að skapa sættir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Þykja breytingar á samningum ekki nóg til að skapa sættir
Valgerði Rúnarsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra lækninga hjá SÁÁ, finnst áform Sjúkratrygginga og SÁÁ um að tryggja armslengd milli félagasamtakan...
Vegurinn í Árneshrepp lokaður vegna skriðu
📅 25.09.2026 👁️ 0
Vegurinn í Árneshrepp lokaður vegna skriðu
Vegurinn í Árneshrepp er lokaður vegna stórrar skriðu sem féll í Kaldbaksvík. Í tilkynningu frá sveitarfélaginu á Facebook segir að vegurinn sé lokaðu...
Why is the Pope in France?
📅 25.09.2026 👁️ 0
Why is the Pope in France?
The BBC's Hugh Schofield looks at why the visit is met with enthusiasm the Church attributes to growing spirituality among the French.
„Ef ég væri Pamela í Dallas“
📅 25.09.2026 👁️ 0
„Ef ég væri Pamela í Dallas“
„Ef ég væri Pamela í Dallas“ Sig­ríð­ur Jóns­dótt­ir skrif­ar um Svika­sög­ur eft­ir Maríu Reyn­dal, sem sýnt er í Borg­ar­leik­hús­inu. Það er ætíð f...
Aflátsbréf frá Brussel
📅 25.09.2026 👁️ 0
Aflátsbréf frá Brussel
Aflátsbréf frá Brussel Fréttin25. september 2026Evrópusambandið, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: Á miðöldum gátu syndar...
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35?
📅 25.09.2026 👁️ 0
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35?
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35? Fréttin25. september 2026InnlendarLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar. Ríkisútvarpið er engin venj...
Afstaða Íslands skýr
📅 25.09.2026 👁️ 0
Afstaða Íslands skýr
Utanríkisráðherra segir afstöðu Íslands til hörmunganna á Gaza, mannúðaraðstoðar og tveggja ríkja lausnarinnar skýra. Stuðningur við Palestínu sé miki...
Mannúðarkeðja mynduð til stuðnings við fólk á flótta
📅 25.09.2026 👁️ 0
Mannúðarkeðja mynduð til stuðnings við fólk á flótta
Boðað var til samstöðufundar fyrir fólk á flótta á Austurvelli í dag. Páll Óskar Hjálmtýsson flutti tvö lög ásamt Ljóta kórnum, Háskólakórnum og Kór H...
Taka upp Netflix þætti á Skóla­vörðu­stíg og Tina Fey ó­væntur gestur - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Taka upp Netflix þætti á Skóla­vörðu­stíg og Tina Fey ó­væntur gestur - Vísir
„Þetta var algjörlega ótrúlegt,“ segir Gunnar Theodór í samtali við Vísi sem hélt útgáfuhóf fyrir bók sína og Linn Janssen, Matargatið í húsakynnum Fo...
Ed Sheeran concerts cancelled becuase of bad weather
📅 25.09.2026 👁️ 0
Ed Sheeran concerts cancelled becuase of bad weather
The star's concerts in Massachusetts on Friday and Saturday are cancelled after severe weather warnings.
Tugir kannabisplantna fundust við húsleit í Bolungarvík
📅 25.09.2026 👁️ 1
Tugir kannabisplantna fundust við húsleit í Bolungarvík
Húsráðandi var handtekinn og færður til yfirheyrslu. Honum hefur verið sleppt og telst málið upplýst. Þetta er þriðja kannabisræktunin sem lögreglan á...
Jet2 plane evacuated after bomb threat at Tenerife South Airport
📅 25.09.2026 👁️ 1
Jet2 plane evacuated after bomb threat at Tenerife South Airport
A Jet2 passenger plane was evacuated at Tenerife South Airport today after a passenger reportedly made a bomb threat, triggering a precautionary secur...
Eldræða Bubba: „Þetta er svívirða“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Eldræða Bubba: „Þetta er svívirða“
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens segir að það sé hernaður í gangi gegn íslensku tungumáli. Í færslu sem lýsa má sem eldræðu segir Bubbi að það þurfi a...
Sonja Ýr Þorbergsdóttir: Það þarf ekki að slá á eftirspurnina hjá fátækasta fólkinu
📅 25.09.2026 👁️ 1
Sonja Ýr Þorbergsdóttir: Það þarf ekki að slá á eftirspurnina hjá fátækasta fólkinu
Vaxtatækið virðist vera eina vopnið við verðbólgu. Það slær á eftirspurn en það þarf ekki að slá á eftirspurn hjá hópnum sem nær ekki endum saman. Þes...
Sýnir Xi lýðræðisdjásn Banda­ríkjanna - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Sýnir Xi lýðræðisdjásn Banda­ríkjanna - Vísir
Trump sagðist einnig, samkvæmt AP fréttaveitunni, vilja sýna Xi gömul skjöl sem fjalla um samskipti Bandaríkjanna og Kína. Búist var við því að Xi myn...
Fundu kannabisræktun í Bolungarvík
📅 25.09.2026 👁️ 1
Fundu kannabisræktun í Bolungarvík
Miðvikudaginn 23. september framkvæmdi Lögreglan á Vestfjörðum húsleit í heimahúsi í Bolungarvík. Húsleitin var framkvæmd vegna grunsemda sem höfðu va...
Flugvirkjar og Icelandair hittast aftur á mánudag
📅 25.09.2026 👁️ 1
Flugvirkjar og Icelandair hittast aftur á mánudag
Ríkissáttasemjari segir fund Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair hafa gengið ágætlega. Samninganefndirnar funduðu í fyrsta sinn frá því að verkfall...
Man City 115 charges: What could the potential sanctions be?
📅 25.09.2026 👁️ 0
Man City 115 charges: What could the potential sanctions be?
Football finance expert Kieran Maguire says the potential sanctions for Manchester City will be 'significant' after the sources told BBC Sport that th...
Taka metsölubók af tilnefningarlista vegna ásakana um notkun gervigreindar
📅 25.09.2026 👁️ 1
Taka metsölubók af tilnefningarlista vegna ásakana um notkun gervigreindar
Taka metsölubók af tilnefningarlista vegna ásakana um notkun gervigreindar Kanadísk-haí­tíski rit­höf­und­ur­inn Thelyson Or­elien neit­ar að hafa not...
Gæslu­varð­hald fram­lengt yfir þremur - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Gæslu­varð­hald fram­lengt yfir þremur - Vísir
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu staðfesti þetta við Vísi í dag. Hún fór ekki fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir hinum þremur. „Rannsókn málsins mi...
Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur vegna fíkniefnabrota og peningaþvættis
📅 25.09.2026 👁️ 1
Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur vegna fíkniefnabrota og peningaþvættis
Þrír þeirra sem sátu í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á umfangsmiklum fíkniefnabrotum og peningaþvætti hafa verið látnir lausir.Þetta kemur ...
Á­kærðir fyrir að frelsisvipta mann og nauðga með röri - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Á­kærðir fyrir að frelsisvipta mann og nauðga með röri - Vísir
Þetta kemur fram í ákæru sem Vísir fékk afhenta að þingfestingu málsins lokinni, en þinghald í málinu er lokað og því hefur ákæran ekki fengist afhent...
Á­kærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Á­kærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri - Vísir
Þetta kemur fram í ákæru sem Vísir fékk afhenta að þingfestingu málsins lokinni, en þinghald í málinu er lokað og því hefur ákæran ekki fengist afhent...
Umsátur í Úkraínu – Hungur vofir yfir Oleshky
📅 25.09.2026 👁️ 1
Umsátur í Úkraínu – Hungur vofir yfir Oleshky
„Gúgglið Oleshky. Það er umsátur um bæinn og þar er mannúðarkrísa. Það berast fregnir af því að fólk svelti og fái ekki mannúðaraðstoð, fái ekki mat e...
Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni - Vísir
Konan lagði fram ákæru árið 2024 þar sem hún sakaði Jay-Z og Sean Combs, betur þekktur sem Diddy, um að hafa byrlað henni og nauðgað í veislu eftir að...
Fundu um­fangs­mikla kannabisrækt í Bolungar­vík - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Fundu um­fangs­mikla kannabisrækt í Bolungar­vík - Vísir
Einnig var hald lagt á búnað sem tilheyrði ræktuninni. Húsleitin mun hafa verið framkvæmd vegna gruns um að verið væri að rækta kannabisplöntur í húsi...
Sveinn komst við og fékk ryk í augað - „Þá kom einlægasta og fallegasta bros ever“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Sveinn komst við og fékk ryk í augað - „Þá kom einlægasta og fallegasta bros ever“
Lífið getur stundum verið fallegt í hversdeginum og þetta upplifði Sveinn Waage, leiðsögumaður með meiru, í vikunni þegar hann var djúpt snortinn af f...
39 missa vinnuna hjá LS Retail, þar af 17 á Íslandi
📅 25.09.2026 👁️ 1
39 missa vinnuna hjá LS Retail, þar af 17 á Íslandi
Hugbúnaðarfyrirtækið LS Retail hefur sagt upp 39 starfsmönnum vegna skipulagsbreytinga. Af starfsmönnunum sem sagt var upp starfa 17 á Íslandi.LS Reta...
Frey sagt upp hjá Eflingu
📅 25.09.2026 👁️ 1
Frey sagt upp hjá Eflingu
Frey Rögnvaldssyni var sagt upp sem upplýsingafulltrúa Eflingar í morgun, framkvæmdastjóri stéttarfélagsins segir við Vísi að uppsögnin hafi ekkert að...
Hvalveiðimaður lýsir 84 klukkustunda vinnuviku í 3 mánuði samfellt – Katrín spyr hvort þetta standist lög um hvíldartíma
📅 25.09.2026 👁️ 1
Hvalveiðimaður lýsir 84 klukkustunda vinnuviku í 3 mánuði samfellt – Katrín spyr hvort þetta standist lög um hvíldartíma
Maður sem starfaði á hvalveiðivertíð greinir frá því að unnið rúmlega 1000 klukkustundir á svokölluðum 8x8 vöktum, án fría. Katrín Oddsdóttir, lögmaðu...
Special agents blood and urine test results stolen in FBI hack
📅 25.09.2026 👁️ 1
Special agents blood and urine test results stolen in FBI hack
Experts say the hack could leave agents vulnerable to scams, blackmail and targeted attacks.
„Nauð­syn­legt er að kjara­samningar haldi“ - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
„Nauð­syn­legt er að kjara­samningar haldi“ - Vísir
Landsþingið lýsir í ályktuninni yfir vilja til lækkunar verðbólgu og vaxta með því að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5 prósenta á árinu 20...
Loftslagsskuldin er framtíðarskuld
📅 25.09.2026 👁️ 1
Loftslagsskuldin er framtíðarskuld
Loftslagsskuldin er framtíðarskuld Rósa Björk Brynj­ólfs­dótt­ir, formað­ur Vinstri grænna, skrif­ar um kostn­að að­gerða­leys­is í lofts­lags­mál­um ...
Hafði ekkert með á­tök sundþjálfaranna að gera - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Hafði ekkert með á­tök sundþjálfaranna að gera - Vísir
Greint var frá átökum á milli sundþjálfara á Vísi í síðustu viku þar sem sundþjálfari KR var handtekinn vopnaður hnífi grunaður um að hafa ráðist á ko...
„Bjóða upp á ein­hverja díla sem meika engan sens og undir­bjóða allt“ - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
„Bjóða upp á ein­hverja díla sem meika engan sens og undir­bjóða allt“ - Vísir
Það er kynlífsfræðingurinn og áhrifvaldurinn Sara Lind Annþórsdóttir sem opnar sig um mál umboðsskrifstofu á samfélagsmiðlinum TikTok. Samkvæmt heimil...
Söguleg dómsmál í Hæstarétti: „Mér fannst brotið á mínum rétti“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Söguleg dómsmál í Hæstarétti: „Mér fannst brotið á mínum rétti“
„Að mínu mati var þetta brot á EES-samningnum um frjálsan flutning launþega á milli EES-ríkja,“ segir Anna Bryndís Einarsdóttir taugalæknir.Hún ræðir ...
Met should probe handling of 'Putney Pusher' suspect death, says IOPC
📅 25.09.2026 👁️ 1
Met should probe handling of 'Putney Pusher' suspect death, says IOPC
Nicholas Brandram's family say he took his own life due to the "pressure" of a police investigation.
Prís frystir ekki verð: „Við erum ódýrust og ætlum að vera það áfram“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Prís frystir ekki verð: „Við erum ódýrust og ætlum að vera það áfram“
Matvöruverslunin Prís ætlar ekki að frysta verð heldur halda áfram að vera ódýrasta verslunin. Verkalýðshreyfingin hefur þrýst á verslanir að frysta v...
Jeffrey Donaldson victim describes 'profound impact' of child sex abuse
📅 25.09.2026 👁️ 1
Jeffrey Donaldson victim describes 'profound impact' of child sex abuse
The former DUP leader was found guilty of 18 counts of child sex abuse, including one of rape, in June.
NHS staff suspected of snooping on patient data to face immediate suspension
📅 25.09.2026 👁️ 1
NHS staff suspected of snooping on patient data to face immediate suspension
There have been too many cases of staff abusing patient trust, and enough is enough, the head of the NHS in England says.
Freyr látinn fara frá Eflingu - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Freyr látinn fara frá Eflingu - Vísir
Freyr var kallaður á fund á morgun og honum sagt upp fyrirvaralaust. Vísir náði tali af Frey í morgun en hann sagðist ekkert geta tjáð sig um málið, þ...
More than 413,000 cruise passengers visit Lanzarote as tourism grows
📅 25.09.2026 👁️ 1
More than 413,000 cruise passengers visit Lanzarote as tourism grows
Cruise tourism in Lanzarote continues to grow strongly, with more than 413,000 passengers arriving in Arrecife between January and August this year.Fi...
Starfsfólk Hagkaups varð ekki vart við lögregluaðgerð fyrir utan búðina
📅 25.09.2026 👁️ 1
Starfsfólk Hagkaups varð ekki vart við lögregluaðgerð fyrir utan búðina
Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til aðstoðar við Hagkaup á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi síðdegis í gær vegna manns með hníf og beitti hún pipar...
Vilja breytingu á „áralöngum samskiptavanda ríkis og sveitarfélaga“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Vilja breytingu á „áralöngum samskiptavanda ríkis og sveitarfélaga“
Jón Björn Hákonarson, sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar, lét af embætti sem formaður stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga í dag og við tók Almar G...
Two arrested after police raid cannabis farm in Tenerife
📅 25.09.2026 👁️ 2
Two arrested after police raid cannabis farm in Tenerife
Two men have been arrested after the Guardia Civil uncovered a substantial cannabis growing and production operation at a property in Tacoronte, in th...
Sara Lind gagnrýnir eiganda umboðsskrifstofu- „Mér persónulega finnst þetta vera költ“
📅 25.09.2026 👁️ 2
Sara Lind gagnrýnir eiganda umboðsskrifstofu- „Mér persónulega finnst þetta vera költ“
Kynlífsfræðingurinn og áhrifavaldurinn Sara Lind Annþórsdóttir segir umboðsskrifstofu og umboðsmann hérlendis grafa undan trúverðugleika áhrifavalda o...