Björn Zoëga, forstjóri King Faisal sjúkrahússins í Sádi-Arabíu segist ekki sjá nein haldbær rök fyrir því að Ísland ætti að gerast aðili að Evrópusambandinu.
Þetta kemur fram í viðtali við Björn á vettvangi Spursmála en hann var einn af frummælendum á upphafsfundi Áfram Ísland sem haldinn var fyrir troðfullu húsi á NASA þann 6. júlí síðastiðinn.
Hvað blasir við 29. ágúst?
Þar var hann spurður hvað hann teldi blasa við þegar Íslendingar ganga að kjörborðinu þann 29. ágúst næstkomandi.
Hvað er það sem þú hugsar þegar að þessi ákvörðun blasir við, þ.e.a.s. ákvörðun sem að við munum taka þarna 29. ágúst?
„Ja, það eru auðvitað nokkrir hlutir sem koma upp í huga mér en auðvitað byrjum á því að segja svo, af hverju ekki leyfa fólki að kíkja í pakkann og svo ég bara, ég horfi á það eftir að hafa bæði starfað innan Evrópusambandsins og séð hvernig þetta var, ég bjó í Svíþjóð þegar að þeir gengu í Evrópusambandið. Ég var að reka stærstu ríkisstofnun Íslands þegar að við vorum að sækja um síðast eða stóðum í þessum viðræðum síðast og sá hversu, hvaða fókus þetta tók bæði frá pólitík og annað og einn af ráðherrunum sem ég hafði þá sem heilbrigðisráðherra á þeim tíma hafði töluvert meiri fókus á þetta heldur en að vera að reka heilbrigðiskerfið.“
Segir Björn að sannarlega sé verk að vinna í íslensku samfélagi, en að það sé verkefni Íslendinga sjálfra til að leysa úr.
„Það er það margt sem mér finnst að þurfi að laga, þó það sé alveg margt, alveg stórkostlegt og vel gert á Íslandi, en að missa fókusinn yfir í þessar aðlögunarviðræður eða aðildarviðræður eða hvað við vildum kalla þetta. Það fannst mér vera svona ekki það besta sem ég hef rætt fyrir Ísland. Ég horfði líka á það að í allri þessari umræðu, auðvitað fylgist maður mjög mikið með því sem er að gerast af því að það eru margir sem eru hérna. Og þetta er auðvitað eitt af mínum löndum, Ísland, þó ég sé fæddur og uppalinn hér, að þá hef ég ekki ennþá séð neitt í umræðunni sem sagt af hverju erum við að fara í allan þennan hasar,“ segir Björn.
Hvað græðum við á því?
Segir hann íslenskt samfélag standa afar sterkt að vígi og að stóra spurningin sé hvað við græðum í raun á þvi að gerast aðilar að ESB. Og hann liggur ekki á sinni skoðun um það.
„Hvað græðum við á því? Við stöndum svo hrikalega vel þó það sé auðvitað fullt af hlutum sem þarf alltaf að laga. Við stöndum svo hrikalega vel, ég bara sé ekki, ég hef ekki séð neinn sem segir, sem vill að það sé farið í Evrópusambandið, geta útskýrt það eða sagt, ekki fyrir mér en bara á svona opinberum vettvangi, hvað við græðum á því. Þannig að ég reyni að vera lógískur og reyni að sjá, ég er búinn að reyna að grafa hvað við græðum á því.“
Viðtalið við Björn má nálgast í heild sinni í spilaranum hér að neðan: