Íranskir fjölmiðlar segja að her landsins hafi skotið tveimur flugskeytum að bandarískri freigátu sem siglt hafi verið um Hormússund. Íransher sagðist fyrr í dag myndu ráðast á öll þau erlendu herskip sem reyndu að sigla um sundið. Sú yfirlýsing var viðbragð við orðum Bandaríkjaforseta um að flutningaskip fengju hervernd á leið í gegnum sundið.
Íranska Fars-fréttastofan sagði að flugskeytunum hefði verið skotið að bandarísku freigátunni eftir að skipverjar svöruðu í engu viðvörunum íranska flotans. Að sögn íranska fjölmiðilsins var bandaríska herskipið á ferð nærri írönsku hafnarborginni Jask.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði í gær að bandarísk herskip myndu fylgja flutningaskipum í gegnum Hormússund. Ríflega 900 skip eru á Persaflóa og komast ekki gegnum sundið án þess að eiga á hættu að verða fyrir árásum. Íranar hafa ráðist á skip og komið fyrir tundurduflum. Bandaríkjamenn hafa sett hafnbann á Íran.
Herstjórn Írans lýsti því yfir í morgun að ráðist yrði á öll erlend herskip sem sigldu um Hormússund eða reyndu að komast þangað.
Fréttin hefur verið uppfærð.