Stjórnvöld í Íran segjast vera við það að ná samkomulagi við Óman um opnun siglingaleiðar gegnum Hormússund. Esmaeil Baqaei, talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, segir samkomulagið „á lokametrunum“ en gefur ekkert frekar upp um innihald þess.
Hann segir að samningur við Óman tryggi öruggar siglingar um sundið þar sem öryggi sæfarenda sé enn ógnað af hafnbanni Bandaríkjanna á íranskar hafnir.
Embættismenn frá Bandaríkjunum og Óman hafa ekki tjáð sig um samkomulagið.
Frá því að Bandaríkin og Ísrael réðust á Íran í febrúar hafa írönsk stjórnvöld haldið Hormússundi nánast lokuðu. Sundið er einkar mikilvæg siglingaleið en fyrir stríðið var um fimmtungur af olíu og jarðgasi heimsins fluttur um það.
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði á þriðjudag að Íranar yrðu fyrir hörðum árásum ef ekki tækist að opna sundið „mjög bráðlega“.
Það sagði Trump eftir að háttsettir bandarískir embættismenn greindu frá því að viðræður milli Bandaríkjanna og Íran gengju vel og að líklega yrði skipaumferð leyft að sigla um sundið síðar í vikunni. Íranar halda því enn sem komið er fram að viðræður séu hvorki yfirstandandi né ráðgerðar. Þeir segja einnig að ef Bandaríkin geri árásir á Íran verði þeim svarað með árásum á orkuinnviði í Persaflóaríkjum.
Heimildarmenn Reuters segja það ólíklegt að skipaumferð verði hleypt um sundið í vikunni líkt og Bandaríkjamenn hafa fullyrt.
Þeir segja samkomulagsdrögin kveða á um stjórn Írana yfir skipaumferð sem siglir inn í Persaflóa um Hormússund.
Helsti ágreiningurinn á þessu stigi málsins snýst um gjöld sem Íranar vilja leggja á skipaumferð. Þau gætu numið á bilinu 5 til 7% af virði farms sem fluttur er um sundið. Ómanar hafa lagt til að gjaldið verði 3% en Bandaríkjamenn vilja að engin gjöld verði lögð á skipin.