Tómas Arnar, fréttamaður Sýnar, ræddi í gær við Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra og starfandi innviðaráðherra, um auknar aflaheimildir til strandveiða og nýtti tækifærið til að spyrja hana út í 67 ára afmælið sem hún fagnaði 3. júlí síðastliðinn.
Þú ert komin núna í hóp eldri borgara en þú hefur barist fyrir réttindum þeirra í mörg ár. Hvernig blasir það við þér?
„Mér líður bara alveg eins, það er furðulegt við það. Ég hélt kannski að ég myndi eitthvað verða skökk á þessu. En nei nei, mér líður nákvæmlega eins og er rosalega glöð að fá að fagna þessum áfanga, vera orðin heldri borgari. Það er frekar fíflalegt að segja það en svona er lífið,“ sagði Inga.
„Maður er bara blessaður að fá að ganga svona langan æviveg. Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug. Það er þannig,“ bætti hún við.