Þetta verður þriðji fundur í deilunni hjá ríkissáttasemjara í vikunni en fundað var fyrr í morgun og á mánudag.
Ríkissáttasemjari hefur sagt deiluna afar snúna en hún þokist þó áfram, og eru áframhaldandi fundahöld til marks um það.
Samninganefndir Icelandair og flugvirkja komu til fundar hjá ríkissáttasemjara klukkan eitt í dag.
Stærsta deiluefnið snýr að mismunandi framtíðarsýn samningsaðila á þessa atvinnugrein.
Icelandair hefur opinberlega sagt að félagið leitist við að geta skotið fleiri stoðum undir reksturinn til að geta brugðist við árstíðarsveiflum og breytingum á samkeppnisumhverfi en núverandi kjarasamningar leyfa. Stéttarfélög flugmanna og flugvirkja hafa hins vegar goldið varhug við slíkum hugmyndum því þau vilja vernda þau réttindi sem fólgin eru í samningum þeirra.