Mjög hefur dregið úr uppbyggingu nýs húsnæðis síðustu mánuði. Íbúðum í byggingu hefur fækkað um 11 prósent á landinu öllu á hálfu ári. Mestur er samdrátturinn þegar litið er til framkvæmda sem hafa hafist síðustu mánuði, nýframkvæmdum hefur fækkað um 56%.
Þetta er meðal niðurstaðna í talningu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar á íbúðum í byggingu.
Á sama tíma hefur nýjum óseldum íbúðum fjölgað um 85 prósent á hálfu ári.
Samkvæmt talningu HMS eru 6.216 íbúðir í byggingu á landinu öllu. Því til viðbótar eru 1.855 fullbúnar íbúðir sem er ekki búið að taka í notkun. Íbúðum sem er verið að byggja hefur fækkað um 772 á sex mánuðum. Samdrátturinn er þó minni ef miðað er við talningu fyrir ári síðan en samt nokkur, nánar tiltekið fimm prósent.
Tíðindin í nýju tölunum eru ekki aðeins þau að færri íbúðir séu í birtingu en áður heldur líka að þeim íbúðum sem færast ekki milli framkvæmdastiga hefur fjölgað um 65% frá því í vor.
HMS hefur endurskoðað spá sína um fjölda íbúða sem verða tilbúnar næstu tvö árin. Nú gerir stofnunin ráð fyrir að 2.100-2.600 íbúðir verði tilbúnar á næsta ári í stað 2.800-3.700 og 1.900-2.800 2028 í stað 2.700-3.700 í eldri spá.