Veðurhorfurnar eru einna bestar á Austurlandi í dag þar sem útlit er fyrir að það haldist þurrt, hiti fari í allt að 15 stig og vindurinn verði sums staðar með rólegra móti.
Heilt yfir er þó viðbúið að verði nokkuð hvöss suðvestan átt, allt að 18 metrar á sekúndu, og víða skúrir.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Gengur í suðvestan 10-18 metra á sekúndu í dag. Víða skúrir, en þurrt að mestu á Austurlandi. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast austanlands. Dregur úr vindi í kvöld.
Suðvestan 5-13 og áfram skúrir á morgun, en bjart að mestu á Norðaustur- og Austurlandi.