Hvalur 9 er lagður úr Reykjavíkurhöfn þrátt fyrir að mótmælandi sé í mastri skipsins. Samkvæmt lögmanni var maðurinn plataður til að gefa upp kennitölu sína svo hægt yrði að skrá hann sem farþega á skipinu, gegn hans vilja. Hún segist hafa tilkynnt málið til lögreglu og Landhelgisgæslunnar.
Katrín Oddsdóttir lögmaður er á Reykjavíkurhöfn og ræddi við mótmælandann í síma. Hún segir hann ekki hafa veitt leyfi fyrir því að hann yrði skráður farþegi né að skipið myndi sigla af stað. Það sé ólögmætt og þó maðurinn hafi sjálfur framið lögbrot með mótmælunum réttlæti það ekki annað lögbrot.
Hún kveðst hafa áhyggjur af manninum, hann hafi lítið batterí á símanum og sé staddur úti á sjó með ókunnugum mönnum sem séu honum óvinveittir.
Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi, segir að tilkynning hafi borist í gegnum fjarskiptamiðstöðina um að hvalveiðiskipið væri á leið í Hvalfjörð og að hugsanlega væri maður í tunnunni í mastrinu.
Hann segir að þar verði einn lögreglubíll til að fylgjast með gangi mála. Þá hafi lögregla verið í sambandi við aðstandendur mannsins og skipstjóra Hvals.
Fyllsta öryggis gætt í síðustu mótmælum
Fréttastofa ræddi við Benedikt Erlingsson leikara skömmu eftir að skipið lagði frá bryggju. Hann segir mótmælandann ekki hafa samþykkt að fara með skipinu upp í Hvalfjörð. Skemmst sé að minnast síðustu mótmæla í hvalveiðibátum Hvals hf. þegar fyllsta öryggis var gætt í hvívetna og skipin hafi ekki mátt fara af stað á meðan mótmælendurnir voru uppi í mastrinu.
Í tilkynningu frá Hvalavinum frá því fyrr í dag segir að mótmælin séu ekki á þeirra vegum. Þar er maðurinn nafngreindur sem Hólmsteinn Harðarson.
Fréttin hefur verið uppfærð.