Fjallað var um það í lok síðasta mánuðar að bátarnir tveir hefðu báðir farið í klössun. Slíkt getur kostað allt að tuttugu milljónir fyrir bæði skip.
Áttaviti skipanna var einnig leiðréttur. Ætla má að til standi að leysa landfestar von bráðar. Stefnt er að því að halda á veiðar undir helgina.
Langreyðarkvóti sumarsins liggur fyrir. Heimilt er að veiða allt að 150 dýr, 34 þeirra austan við land. Miðað við reynslu fyrri vertíða má ætla að um 150 manns fái vinnu við hvalveiðarnar í sumar, bæði á skipunum við veiðarnar og við vinnsluna í hvalstöðinni í Hvalfirði.