Ekki gilda sömu lög um félög og hreyfingar, sem beita sér í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar, og stjórnmálaflokka eða einstaka frambjóðendur.
Ólíkt þeim síðarnefndu þurfa félagasamtök ekki að afhenda ríkisendurskoðanda yfirliti yfir styrki til og ekkert þak er á því hve háa upphæð þau mega þiggja. Þá þurfa þau ekki að gefa upp hver styrkir þau.
Ríkisendurskoðandi sagði í fréttum í gær að engin leið væri að fylgjast með hvaðan fjármagn já- og nei-baráttuhópa fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna kæmi.
Í nýrri skýrslu gerir Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, ÖSE athugasemdir við að hér á landi séu glufur í lagaumhverfi, sérstaklega um fjármögnun kosningabaráttu.
Fréttastofa sendi fyrirspurn til hreyfinganna, sem beita sér í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar, um fjármögnun þeirra og skipulag.
Fyrirspurnin var send á Heimssýn, Evrópuhreyfinguna, Áfram Ísland, SJÁ, Til vinstri við ESB, Ung gegn ESB og Unga Evrópusinna.
Þess ber að geta að Heimssýn og Evrópuhreyfingin hlutu hvort um sig tíu milljóna króna styrk frá stjórnvöldum eftir að atkvæðagreiðslan var boðuð. Þeim ber lögum samkvæmt að gera grein fyrir því hvernig styrkirnir eru nýttir.
Bæði félög ítreka að þau muni gera það.
Fá hreyfingarnar styrki frá útlöndum?
Fá hreyfingarnar styrki frá stjórnmálahreyfingum?
Hefur hreyfingin tekið við styrkjum úr atvinnulífinu?
Ætla hreyfingarnar að birta bókhaldið?
Hversu háar fjárhæðir hafa hreyfingarnar þegið?
Þar sem félögin eru undanþegin ársreikningaskilum ber þeim ekki skylda til að gefa upp hve háa styrki þau þiggja. Fréttastofa spurði engu að síður.
Áfram Ísland vísaði þess til þess að þeim bæri ekki að gefa slíkt upp.
Evrópuhreyfingin gaf upp að styrkir til hreyfingarinnar, að undanskildum styrk frá stjórnvöldum, væru á bilinu eitt þúsund krónur til ein milljón króna.
Heimssýn segir langstærsta styrkinn hafa verið frá stjórnvöldum. Annars hafi engir styrkir verið yfir 300 þúsund krónur. Þeir lægstu séu nokkur þúsund krónur.
SJÁ segir algengustu styrki hreyfingarinnar á bilinu 5-10 þúsund krónur. Heildarfjármagn sem safnast hafi til þessa sé 27,3 milljónir króna.
Ungir Evrópusinnar segja lægsta styrkinn sem þau hafa fengið vera þrjú þúsund krónur og hæsta styrkinn um 300-400 þúsund krónur.
Ung gegn ESB segja lítið sem ekkert fé hafa runnið í gegnum félagið til þessa. Til vinstri við ESB segjast hafa fengið litla sem enga styrki.
Hvernig eru hreyfingarnar fjármagnaðar?
Allar hreyfingarnar segjast fjármagnaðar af frjálsum framlögum eða styrkjum. Heimssýn og Til vinstri við ESB segjast einnig fjármögnuð með félagsgjöldum.
Þá segjast Ungir Evrópusinnar Samkvæmt Evrópuvef Háskóla Íslands varfjármagna sig með sölu fatnaðar.
Ung gegn ESB segja hreyfinguna rekna með nær engum kostnaði.
Hverjir eru helstu styrktaraðilar hreyfinganna?
Misjafnt er hvaðan félögin fá styrki að þeirra eigin sögn. Heimssýn og Evrópuhreyfingin segja félagsmenn stærstu styrktaraðila þeirra að undanskildum styrknum frá stjórnvöldum.
Til vinstri við ESB segja félaga vera sína helstu styrktaraðila. Þau hafi leitað til Heimssýnar um hlutdeild í styrknum frá stjórnvöldum en segja ljóst að sá stuðningur verði takmarkaður.
SJÁ segjast hafa fengið frjáls framlög frá einstaklingum og fyrirtækjum á Íslandi og Áfram Ísland segja starfsemi sína líka fjármagnaða með frjálsum framlögum einstaklinga og lögaðila.
Ungir Evrópusinnar segja einstaklinga þeirra helstu styrktaraðila. Ung gegn ESB segja enga formlega styrktaraðila að undanskildum stjórnarmönnum félagsins sjálfs.