Í nýju námsmati er samkvæmt tilkynningu gerður greinarmunur á lokaeinkunn og einkunn fyrir einstaka verkefni og próf. Í tilkynningu segir að þegar komi að námsmati á verkefnum og einstaka prófum megi nota einkunnakvarðann 1 til 10 og þá geti einkunnin 7 merkt að nemandinn hafi náð 70 prósent árangri í viðkomandi verkefni eða prófi. Sé hins vegar um að ræða lokaeinkunn nemanda eftir heilt skólaár skuli hún birt á kvarðanum 4 til 10.
Lokaeinkunn ekki sama og verkefnaeinkunn
„Hér er afar mikilvægt að hafa í huga að lokaeinkunn samkvæmt aðalnámskrá er mat á „hæfni” nemenda eftir heilt skólaár en er ekki einkunn fyrir eitt lokapróf. Nemendur fá ýmis konar leiðsögn og endurgjöf yfir skólaárið sem felur ekki alltaf í sér eina einkunn. Hæfniviðmið aðalnámskrár sem kennarar byggja kennslu á eru lýsing á því sem nemandi á að hafa náð tökum á,“ segir um þetta í tilkynningu mennta- og barnamálaráðuneytisins.
Merking lokaeinkunna er svona í nýju námsmati samkvæmt tilkynningu ráðuneytisins:
- Einkunnin 4 sýnir að hæfniviðmiðum hefur ekki verið náð.
- Einkunnirnar 5 og 6 lýsa stigvaxandi hæfni hjá nemandanum.
- Einkunnin 7 sýnir að nemandinn hefur náð lágmarksviðmiði til að hefja nám á öðru hæfniþrepi framhaldsskóla í íslensku, stærðfræði og ensku.
- Einkunnirnar 8–10 lýsa stigvaxandi dýpt, öryggi, sjálfstæði og aukinni færni í að beita þekkingu. Þannig fær nemandi 9 eða 10 fyrir framúrskarandi tök á þeirri hæfni sem gerð er krafa um í grunnskóla. Að gefnu tilefni er tekið fram að ekki er gerð krafa um að slíkur nemandi þurfi að ljúka framhaldsskólaáfanga.
Í tilkynningu segir að samhliða breytingu á námsmati sé stefnt að því að bæta upplýsingagjöf til nemenda og foreldra þannig að þeir eigi auðveldara með að átta sig á stöðu í námi, framförum og þeirri hæfni sem nemandinn hefur náð.
Í tilkynningu ráðuneytisins er fjallað nokkuð ítarlega um muninn á verkefna- eða prófaeinkunn og lokaeinkunn. Þar segir að lokaeinkunn sé annars eðlis og skuli lýsa hæfni sem nemandi hafi náð eftir heilt skólaár. Við lokamat á hæfni nemenda sé því litið til allra verkefna, prófa og annarrar frammistöðu sem nemandi hefur sýnt af sér yfir allan veturinn.
Ekki forsvaranlegt að gefa einn, tvo eða þrjá
Þá kemur fram að ekki sé talið forsvaranlegt að gefa barni lokaeinkunnina 1, 2 eða 3 eftir heilt skólaár. Lokaeinkunn í grunnskóla eigi fyrst og fremst að meta stöðu nemandans í námi. Einkunnin fjórir segi einfaldlega að hæfniviðmiðum hafi ekki verið náð og þá fylgir umsögn með lokaeinkunn sem segir hvar nemandinn stendur og hvað þarf að bæta.
„Eins og fyrr segir þá er lokaeinkunn byggð á frammistöðu alls skólaársins en ekki einu prófi. Að sjálfsögðu geta nemendur fengið 1–4 í einkunn fyrir einstök próf og verkefni sem tekin eru á skólaárinu. Fái nemandi ítrekaðar einkunnir á bilinu 1–4 kallar það eftir viðbrögðum skólans í formi aukins stuðnings eða einstaklingsmiðaðs náms,“ segir að lokum.
Breyting á kvarða sé ekki til hins betra
Grunnskólakennari gagnrýndi nýjan kvarða fyrr í vikunni og spurði í hvaða vitleysu einkunnakerfi hérlendis væru stödd. Reglugerð um nýja einkunnagjöf sem eigi að innleiða í vor sé ekki úthugsuð en það þurfi fyrst að breyta aðalnámskrá og því næst eigi að setja upp kvarða sem passi fyrir þá aðalnámskrá. Það sé skammsýni að telja að nýr kvarði verði breyting til hins betra.
Þann 7. ágúst tilkynnti menntamálaráðherra um breytingar á námsmati í grunnskóla. Einkunnir verða birtar í tölum í stað bókstafa og verða breytingarnar innleiddar í tveimur áföngum, í 10. bekk næsta vor og 4. og 7. bekk vorið 2028.
Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins, sagði um breytingarnar í sumar að kennarar hefðu viljað samráð frekar en samtal um ákvörðun er varðar breytt námsmat í grunnskólum landsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur mikill hiti verið á fundum kennara, skólastjórnenda og fulltrúa ráðuneytisins síðustu daga.