Verslunarhúsnæði á jarðhæð Ásvallagata 19 er komið á sölu, en í húsnæðinu er verslunin Kjötborg, ein þekktasta hverfisverslun höfuðborgarinnar og þó víðar væri leitað.
Bræðurnir Gunnar og Kristján Jónassynir eru eigendur Kjötborgar og hafa staðið vaktina frá árinu 1981 í verslun sinni á horni Ásvallagötu og Blómvallagötu.
„Kæra FB fjölskylda og vinir, komið er að tímamótum hjá Kjötborgar bræðrum. Og tími til kominn að snúa sér að öðru. Í tilefni þess biðjum við ykkur um að dreifa fasteignaauglýsingu um Ásvallagötu 19 svo þeir geti farið að njóta og lifa (eins og sagt er í laginu)“, skrifar Jónas Þór, sonur Gunnars í færslu á Facebook.
Húsið er byggt árið 1938 og er jarðhæðin 88 fm. Óskráður kjallari er undir hluta húsnæðisins sirka 40 fm og ekki með fullri lofthæð. Húsnæðið er að mestu einn salur með snyrtingu og starfsmannaaðstöðu baka til.
Ásett verð er 55 milljónir króna
Í auglýsingu kemur fram að húsnæðið gæti hentað fyrir margskonar starfsemi. Tilvalið til að breyta í íbúð eins og segir.
Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.