Sævar Guðjónsson, sem rekur ferðaþjónustuna á Mjóeyri við Eskifjörð og hefur starfað sem hreindýraleiðsögumaður, rak upp stór augu þegar hreindýrstarfur synti út í Eskifjörð í gær. Sævar telur að dýrið hafi verið á sundi í um klukkutíma. Hann hafi aldrei hafa séð slík sundtilþrif hjá hreindýrum.
„Ég hef ekki séð þetta áður, þetta var náttúrulega alveg stórmagnað að fylgjast með þessu, það er aftur á móti alveg þekkt að hreindýr syndi,“ segir Sævar.
Hreindýr eru öflug sunddýr, eins og sjá má á myndbandinu að neðan sem Elia Carbonella, starfsmaður Mjóeyrar, tók.
Feldur hreindýra heldur vatni vel frá og dýrin fljóta því einstaklega vel. Sævar segir að klaufirnar virki líkt og sundfit þegar í vatnið er komið.
Skaut skelk í bringu
Tarfurinn, sem hafði verið einn á vappi ofan við Mjóeyri, stakk sér til sunds eftir að eitthvað skaut honum skelk í bringu. Dýrið sneri aftur í land þegar það hafði synt yfir hálfan fjörðinn. Þá hafði það verið á sundi í drjúgan tíma.
Sævar segir hreindýr almennt vera nær byggð á þessum árstíma því upp til fjalla sé enn snjóþungt.
„Gróðurinn er fljótastur að taka við sér svona neðarlega, hreindýrin eru neðarlega á þessum árstíma, þangað til um miðjan júlí, þá líta þau á klukkuna og sjá að veiðitímabilið er að byrja og flýta sér upp til fjalla.“
Tilþrif tarfsins minna óneitanlega á hetjudáð kýrinnar Sæunnar sem sleit sig lausa frá slátrara og stakk sér í sjóinn í Önundarfirði á Vestfjörðum 1987. Kýrin synti tæplega þrjá kílómetra þvert yfir fjörðinn þar sem hjón á bænum Kirkjubóli tóku á móti henni.